Á meðan fólk keyrir drukkir og aðrir verða fyrir líkamsárásum....

......þegar ég las þessa frétt fannst mér um einhverskonar ólátabelgi vera að ræða. Hafði ekki hugmynd um þessi mótmæli og veit ekkert út á hvað þau gengu.... ef þau gengu út á það að mótmæla Davíð eða einhverjum af þeim sem voru í fréttum, þá er ég fegin að hafa ekki tekið þátt í þeim.

Ég tók sjálf þátt í mótmælum við þinghúsið og var að mótmæla því hve illa var komið fram við okkur að fá ekki að vita neitt hver staðan væri og hvert horfði. Þingmenn og ríkisstjórnarmenn létu okkur ekkert vita og við vorum eflaust mörg farin að ráfa bara um og klóra okkur í höfðinu. Þó ég hafði verið í vinnunni, þá var ég oft að hugsa um hvert stefndi meðan á vinnu stóð og í raun er það þannig ennþá, hjá mér hefur ekkert breyst Wounderingég er ekkert bjartsýnari með framhaldið. Til hvers var eiginlega verið að splundra þessari ríkisstjórn ? Veit semsagt Steingrímur Joð alla lausnina á því hvernig eigi að endurreysa Ísland ? var það málið ?

Kveðja,
Inga Lára


mbl.is Bál kveikt á Lækjartorgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Árnason

Ástæðan fyrir því að splundra þessari stjórn, var það að fá spillingarliðið út. Það að fá Sjálfstæðisflokkinn var stór sigur og nú eru meiri líkur að eitthvað verði rannsakað, en það var ekki miklar líkur með sjálfstæðismenn sem voru eflaust tengdir inn í þetta allt.

Sigurður Árnason, 15.2.2009 kl. 12:32

2 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Ég geri mér alveg grein fyrir því, en líkt og svo margir aðrir bjóst ég við að einhver kraftaverk myndu gerast í barnafjölskyldum og hjá þeim sem hafa minni tekjurnar, en það kannski er ekki við því í búast í dag þar sem eru ekki til neinir peningar

Inga Lára Helgadóttir, 15.2.2009 kl. 17:45

3 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Það var stór sigur að losna við sjálfstæðisflokkinn úr ríkisstjórn og vona ég að hann komist ekki til valda strax aftur.  En ég á ekki von að ný ríkisstjórn geri kraftaverk alla vega ekki meðan þessi sandkassaleikur er á Alþingi.

En samt sem áður þá verðum við að vera bjartsýn það þíðir ekkert annað, Þrátt fyrir að ég sé að missa vinnuna 1.apríl og leigjendurnir á íbúðinni minni fara út 1. mai þá verður maður að lita jákvætt fram í svartnættið. 

kv

Þórður Ingi

Þórður Ingi Bjarnason, 16.2.2009 kl. 14:44

4 Smámynd: TARA

Það eru til peningar, þeir vilja bara ekki láta þá af hendi, geyma þá trúlega til elliáranna til öryggis ef launin þeirra skyldu lækka...

TARA, 17.2.2009 kl. 00:29

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og nítján?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Inga Lára Helgadóttir

Höfundur

Inga Lára Helgadóttir
Inga Lára Helgadóttir

Mér datt í hug að opna blogg, bara til að vera eins og Steingrímur stóri bróðir minn

Er nemi í Háskóla Íslands í félagsráðgjöf, húsmóðir með barn og mann og svo er ég í 40% starfi á Geðsviði LSH, á deild 33A

Ég hef gaman af blogginu og kem hér inn með mínar skoðanir og fleira sem mér dettur í hug að ræða. En vil endilega fá speglun á þær og viðhorf annarra.  Mínar eru ekki alltaf réttar og þá er gott að fá sjónarmið annarra ..... 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ar_2008_002
  • Sófi til sölu
  • Hann er ekki alveg að sofna.
  • Vignir Bergmann tengdapabbi
  • Þrír saman

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband