Færsluflokkur: Bloggar

Nýja fjölskyldugerðin

Já, í dag er gjarnan sagt að öll sú þjónusta sem í boði er fyrir fjölskyldur sé óþörf, að áður hafi ekki verið allir þessir sérfræðingar að leysa vandamál fjölskyldunna og þessvegna ætti ekki að þurfa þess núna. En hvað ?

Hér áður, fyrir ekki svo mörgum áratugum síðan, þá vann faðirinn úti allan daginn alla daga og konan var heima fyrir að skipta á bleyjum, elda mat, þrífa og gera allt það sem kallaðist dagleg heimilisstörf. Maðurinn kom heim gjarnan seint á kvöldin og fekk sér að borða, lagðist svo kannski upp í sófa og horfði á sjónvarp eða slappaði af á einn eða annan hátt. Yfir daginn hafði konan verið heimafyrir með rúllurnar í hausnum, kjól sem var allur hnepptur að framan og átti þá til í jafnvel öllum litum.

Í dag, þegar allar fjölskyldur þurfa að eignast nýjustu innréttingar og innbú í eins stórar íbúðir og hægt er, nýja bíla á svo miklum afborgunum og háum tryggingum að fólk nær ekki að sofa á næturna, fá sér nýtt sjónvarp á hverju ár, eða 42" flatskjá eða skjávarpa sem er enn dýrari, nýjustu tölvurnar og nýjustu tísku sem er á verði sem enginn ræður við nema með greiðsluskiptingu á VÍSA og börnin alveg að fríka út í tölvum svo kalla þurfi á lögreglu inn á heimilin aftur og aftur, unglingurinn farinn að reykja hass og hættur að nenna að læra heima og talar eitthvað óskiljanlegt mál sem er eitthvað eins og hálfgert sérmál unglinganna í dag (hafið kannski heyrt þetta í strætó eða verlsunum eða þegar þið gangið fram hjá unglingahópum úti á götu) og hatrið í pólintíkinni er orðið svo mikið að enginn fær að njóta sín og eing og ég segji.... þá er ríkið að rýja okkur inn að skinni og borgin sömuleiðis Devil
Eftir slíka lýsingu, þá skulum við hugsa okkur að þegar einstaklingar eru að berjast  við að missa ekki allt niður um sig, kannski búin að missa einn eða tvo af sínum nýjustu bílum og skulda enn helling í þeim og eru á barmi taugaáfalls að missa ekki íbúðina líka og eru samt að hugleiða hvernig megi fjárfesta í næsta bíl og enn dýrari íbúð og enn dýrari........., þá er það orðið ansi reitt og hrætt, getur ekki sofið lengur, farið að líða illa, jafnvel komið á þunglyndislyf og veit ekki sitt rjúkandi ráð og er alveg að bilast í þessu samfélagi sem er að truflast af einkennum einstaklingshyggju og kapítalisma. Kallinn langar eflaust að berja konuna, sem þolir ekki börnin, því að hún er svo þreytt að hún nær ekki að sinna þeim og hverfur ofan í kapal í tölvunni eða að skoða einhverjar heimasíður til að kaupa sér allskonar drasl sem hún ræður ekkert við að greiða, en það er vandamál næstu mánaðar svo að hún er búin að tryggja sér svefnleysi næstu mánuðina á eftir líka Woundering
Börnin enda á pappírum hjá Barnavernd eða á meðferðarheimilum sem unglingar vegna of mikillar vanrækslu frá foreldrum, sem eru jafnvel orðin svo rugluð af þunglyndislyfjum og svefnleysi að þau eru alveg búin að gefast upp á lífinu og finnst bara best að skilja og finna sér aðra maka á fyllerý á djamminu og gera meiri djöfulsins skandala sem aðrir skilja ekkert í og ekki einu sinni þau heldur.

Ok ? er núna kominn smá skilningur á því af hverju fólk þarf orðið aðtoð með uppeldið, hjónabandsráðgjöf, uppeldisráðgjöf, helst að fara til sálfræðings einu sinni á tveggja vikna fresti og að reykja sig í hel eða vera öfgafólk í ræktinni, komin um 300 tólfsporasamtök við öllum fjandanum ? Gasp Ef að við hefðum ekkert til að minnka aðeins þungan af þessu blessaða lífi sem við lifum í sameiningu í þessu þjófélagi sem er alveg að fríka  eins og ég lýsti hér áðan, þá værum við komin í ENN VERRI MÁL, sem hljómar ekki vel Wink

Því fór ég að læra félagsráðgjöf og veit að ég á eftir að hafa nóg að gera við að bjarga heiminumTounge


Þeir útlendir fyrir okkur og við útlendingar fyrir þeim

Já, ég hef séð núna eftir að Frjálslyndiflokkurinn kom með þessa brennheitu umræðu varðandi innflytjendamál, að þá hafa málefni þeirra innfluttu mikið verið á vörum manna, eða allavega í kringum mig.

En hvað með þessi blessuðu málefni þeirra útlendinga sem koma hingað ? Þeir eru jú af öðrum þjóðflokki en við íslendingar og svo ætlast þeir til að fá að kalla sig íslendinga líka Crying Þetta er svona í áttina að því sem ég heyri þessar umræður og að ástandið hér sé að verða eins og í Danmörku og að allir sem komi hingað fari bara á spenann hjá Féló og annað slíkt. En þannig er mál með vexti að sá sem ætlar að fá að setjast hér að, hann verður að sýna fram á EIGIN framfærslugetu og það er sko ekki til í dæminu að koma og ætla að byrja að skrá sig hjá félagsþjónustunni.

En hvernig er það, núna eru um 16.000 manns af erlendum uppruna hér og eru þeir u.þ.b. 9% af virku vinnuafl á markaði hér á landi. En hvað með okkur, eigingjörnu, sjálfselsku og tala nú ekki um SÉRSTÖKU íslendinga Whistling ég veit ekki betur en að um 30.000 íslendingar starfi erlendis eða eru þar í námi eða annað slíkt, erum við þá ekki orðin nokkuð böggandi leiðindar innflytjendur sem ættum að drulla okkur heim ?Woundering

Hagfræðingar Kaupþings hafa núna sýnt fram á að þeir sem koma hingað til okkar í vinnu, að þeir eru að halda verðbólgu okkar aðeins fyrir neðan það sem hún hefði geta orðið ef við þessi SÉRSTÖKU værum bara ein um þettaBlush verðbólgan hefði mælst yfir 1% meira en hún hefur verið ef að við hefðum átt að sjá um þetta sjálf. Þeir sem koma hingað af erlendum uppruna, þeir fá ákveðin störf, og oft eru það störf sem við sækjum lítið eftir, en þeir þurfa síðan líka vörur og þjónustu sem skapar okkur meiri störf. Spáið í það að við þurfum að framleiða og þjónusta fyrir alveg 16.000 manns í viðbót, og er það ástæða til að kvarta ?Cool 

Ég get ekki hugsað mér annað en að ef einstaklingar frá hverju þjóðríki fyrir sig myndu mætast og eiga stundir saman, þá myndu þeir sjá að það væri meira sameiginlegt með þeim en ekki. Ég hef talað um að þorramaturinn og gömlu ullarfötin og annað slíkt sé okkar mennig og að Ísland sé hreynt land og bla bla bla, en halló- ég ét ekki þorramat og á ekki einu sinni ullarpeysu, ég á held ég mikið meira sameiginlegt með manneskju sem er jafnaldri minn og kemur annarsstaðar frá heldur en kannski 92 ára bóndi úr Landeyjunum eða eitthvað. Ég þori að veðja að hann mundi ekki þola að hlusta á sömu tónlist og ég, mundi örugglega ekki vera sólginn í pizzu og hvað þá að vilja alltaf fá nýjasta GSM símann á markaði eða nýjustu tölvuna, svo að við eigum ekkert annað sameiginlegt en það að forfeður okkar átu slátur á hverjum degi og tóku kannski þátt í morðinu á Gísla Súrssyni. En ég held að mundi ganga vel upp að fá að hitta jafnaldravinkonu frá fjarlægu landi og deila með okkur áhugamálum og ólíkri reynslu.Smile Ég meina, ég fór til Englands um daginn og þar var verið að spila tónlist sem ég fýlaði í botn og ég dýýýrka austurlenskan mat Grin.

Ég vil samt ekki segja að allir þeir sem eru á móti því að fleiri komi til landsins séu rasistar, langt því frá, heldur ættu þeir kannski að opna sig meira fyrir því að kynnst öðrum og leggja skoðanir sínar á hilluna um leið. Líka að fá að vita hvað sé að gerast í raunveruleikanum, að ekki séu allir útlendingar á féló og að þeir skapi okkur á Íslandi meiri hagvöxt Wink ........ ég tala nú ekki um snilldina við matargerð sem þeir taka með sér hingað.

En endilega kommentið mig, mér er alveg sama þó ykkur finnist ég hálfviti að segja svona, en þetta er bara svona Tounge


Félagsleg frávik samfélags og fordómar

Jæja, nú ætla ég að koma með nokkuð sem ég hef mikið verið að hugsa um, þá eru það félagsleg frávik í samfélaginu, semsagt hvað varðar ofvirka, einhverfa, alkóhólisma, fíkla, einstaklinga sem laðast að sama kyni og fleiri slíka hópa.

Nú er litið svo á að einstaklingar sem tilheyra þessum hópum séu félagsleg frávik, en ég var að hugsa um það að ef að við myndum biðja alla einstaklinga sem eru félagslegir frávikar að hópast saman á ákveðinn stað, sesagt allir þeir sem ég taldi hér að ofan, einnig matarfíklar og anorexíur, geðsjúkir, meðvirklar, þunglyndir, spilafíklar og fleiri, ætli að það væri þá nokkur eftir ? Errm En af hverju er þá verið að titla þetta sem einhverja frávikahópa ? Woundering Ég get ekki betur séð en að þeir sem eiga ekki við neitt að þessu að stríða, séu frekar frávikar en þeir sem tilheyra þessum hópum Grin.

Skilgreiningar, rosalegt vandamál hjá okkur í dag og mikið deiluefni í samfélaginu. Er alkóhólismi sjúkdómur, þjáist viðkomandi drykkjumaður af heimsku eða hvað ? Eru allir sem eru skilgreindir ofvirkir bara svona óþekkir, á að taka upp aftur að flengja börn ? Wink Mér finnst það persónulega siðlaust að berja börn svo að þau hlýði, þó að þú lesandi góður kunnir kannski ekki aðrar aðferðir (ef við á) Whistling
En hvað er eiginlega málið með þessar skoðanir okkar ? Eigum við alltaf að vera að finnast eitthvað um eitthvað sem við höfum alls ekkert hundsvit á ? Ég meina tökum nú önnur dæmi, eins og með sykursýki, á mér að finnast eitthvað um það hvort um sé að ræða sjúkdóm eða ekki ? og hvernig samfélagið eigi að bregðast við ? GetLost Þá væri ég eflaust að grufla í einhverju sem ég hefði ekki mikið vit á og ætti þar af leiðandi kannski ekki að hafa miklar skoðanir á því.
Ekki hef ég skoðanir á því af hverju himininn er blár, af því að ég hef ekki hundsvit á því af hverju og hef ekki mikið verið að lesa neinar rannsóknir um það eða annað slíkt. En ég gæti svosem alveg röflað yfir kaffibollanum (drekk reyndar ekki kaffi) við einhverja manneskju úti í bæ, af hverju himininn væri blár og fundist ég hafa mart til málanna að leggja..... en nei, ég vona að ég fari nú ekki að gera þá vitleysu Tounge.

Félagleg frávik er nokkuð sem á við um fólk, og mér datt í hug að þá kannski finnst öðru fólki það hafa einhvern rétt á því að rakka viðkomandi einstaklinga niður og dæma þá alveg hægri vinstri. Er þetta spurning kannski um það hvernig við lítum á okkur sjálf og hvort við getum farið að vera nógu sátt og borið virðingu fyrir náunganum, .....kannski aðeins meira fyrirhafnarlaust en við höfum gert áður. Þurfum við að hafa allar þessar leiðinlegu skoðanir sem að eru gjarnan byggðar á fordómum, eða getum við sagt við okkur sjálf, "já, kannski að ég ætti aðeins að draga mig í hlé með að gagnrýna fíkla svona harkalega, eða ofætur eða aðra hópa". Eru fordómar okkar ekki líka byggðir á einhverju sem við berum ákveðinn ótta til ? eða nokkuð sem að okkur bíður við ? og eiga þá samfélagsleg gildi að fara eftir ÞÍNUM SMEKK ? ert þú tilbúin/nn að gerast ábyrgur fyrir öllu ?Police

Gott getur verið að velta fyrir sér fjórum spurningum þegar verið er að skoða eigin fordóma og ég ætla sko að segja ykkur að ég hef ekki verið alveg fordómalaus Devil, en ég hef verulega verið að takast á við það og finn að hugarfar mitt er að breytast og er farin að finna að það er mart annað í þessari veröld en bara ég og mínir Woundering satt að segja get ég sagt sem svo að hugsun mín einkenndist af því að ég var nafli alheimsins og naflastrengurinn náði aðeins í kringum Ísland Wink og þar ætlaði ég sko að fá að vera landamæravörður, en sem betur fer gekk það ekki eftir Shocking

1. Á hverju byggi ég skoðun mína ?  (þá skoðun gagnvart ákveðnum hóp eða öðru sem fordómar beinast að).

2. Geri ég það vegna eigin reynslu eða sögusagna annara ?

3. Getur verið að ég sé að ofmeta eða vanmeta sögusagnir annara ?

4. Hvaða aðstæður geta verið að kalla fram þessa hegðun ?

                                                     Sótt þann 14. febr. 2007 af  www.alltannad.is/greinar/fordomar-eru-fafraedi-eda-hvad


Góðir íslendingar,

Jæja, ég hef oft hugsað um það hvað mætti fara betur í okkar samfélagi, jú margir telja sjálfan sig geta gert best og hugsað sem svo að ef þeir fengju að ráða öllu að þá yrði heimurinn betri. Það er ekki þannig sem að ég hugsa, því að ég hef einfaldlega ekki vit á öllu (þó ég tali stundum þannig Devil).

En hvað mætti fara betur, þá bara litlir hlutir ? Í dag virðast allir hugsa um sig og engan annan en sig, mörgum er nokkuð slétt sama um náungann og varða lítið um það hvernig aðrir hafa það. Einstaklingshyggjan er að drepa of marga, sem vilja græða sem mest og lifa við eins mikinn munað og hægt er á meðan aðrir eiga ekki einu sinni það sem er þeim nauðsynlegast Blush.

Hvernig er það, af hverju er ekki lagt meira upp úr því að þjónustufólk í verslunum brosi og bjóði góðan dag og að þau fái sömuleiðis óskir um góðan dag á móti ? Af hverju  fæ ég jafnvel ekki svör þegar ég kem inn í búð og býð góðan dag, þetta er útbreiddur vandi, ekki bara ég sem er vör við þetta.
Gísli Marteinn ætlaði að koma í veg fyrir veggjakrot (yah right- gangi honum vel), en af hverju getum við ekki borið virðingu fyrir því sem er í kringum okkur, semsagt umhverfi okkar ? Því megum við ekki ganga um og vera stolt af umhverfinu, án þess að það sé eyðinlagt. Hver ert þú (ef á við) að eyðinleggja það sem er öðrum kært ?
Af hverju að svíkja og ljúga upp á náungann og vera óheiðarlegur. Ég nenni ekki þessum vinkonuhópum, endalaust baktal og leiðindi.

Af hverju snúum við ekki hvert og eitt að okkur og spurjum okkur hvað við sjálf getum gert til að gera samfélagið betra ? Hvað getur þú lesandi góður gert til að koma í veg fyrir áframhaldandi niðurníslu á samfélagi okkar ? Endilega gefið mér komment Smile

Það væri æðislegt að geta búið í samfélagi þar sem að ríkti meiri velvild milli manna og við gætum öll lifað nokkuð sátt og í aðeins meira samlyndi en áður... þannig vildi ég hafa það Halo en hverjir eru tilbúnir að taka þátt í því ? FootinMouth

Bless í bili, kiss kiss Kissing


Til hamingju Röskva með sigurinn

Jæja, þá er komið að háskólapólintíkinni,

Núna er Röskva búin að sigra Vöku í pólintík HÍ. Ég var mjög sátt við það, þar sem að Röskva er með þau málefni í fyrirrúmi, sem að skipta sköpun fyrir mig og mína háskólagöngu. 

Þar sem ég er í fullu námi og er foreldri, þá þarf ég að geta hugsað meira um lærdóminn og heimilið og unnið minna en ég er vön að gera og með því að hafa fólk í háskólaráði sem er tilbúið að berjast fyrir hækkun námslána, þá lít ég bjartsýnni augum til áframhaldandi skólagöngu. Þegar ég hlustaði á krakkana tala um sín baráttumál, þá létti mér við að heyra að einhver væri að berjast fyrir mig, en án þess að vera beint að setja út á Vöku, þá fannst mér þau ekki ná eins vel til mín eins og Röskva.... með það í fyrirrúmi að vilja ljúka jólaprófum fyrr og eitthvað slíkt, jú auðvitað væri það fínt, en ég þarf að geta lifað.

Með því að vilja fjölga lóðum undir stúdentaíbúðir, koma blindraletrti á allan skólan og fleira, þá var Röskva ekki að sinna mínum þörfum, en þau voru að sinna þörfum margra nemenda inna HÍ og það er nokkuð sem ætti að gleðja, að þau skulu gera nemendum auðveldara með að vera í námi.

Endilega segið mér með athugasemdum hvort hafi átt að sigra að ykkar mati, Röskva eða Vaka !!! 


Fyrsta bloggfærsla

Hæhæ, þá er það fyrsta sinn sem ég skrifa svo allir geta séð...... og mér líður eins og hálfvita W00t en mig langar að koma með ýmislegt sem ég er að hugsa, þá varðandi uppeldi, pólintík og annað slíkt og endilega kommentið á mig, hvort sem þið eruð sammála eða finnst ég alveg út í hött Cool skiptir mig svosem ekki þó ykkur finnist þetta asnalegt, því að það segir til um ykkur, ég er snillingur og ........kannski ekki þið Whistling

Það er búið að vera hörkufjör hjá okkur litlu fjölskyldunni yfir helgina, á föstudagskvöld fórum við öll saman út að borða á Pizza Hut og átum þar á okkur gat. Mmmmm, alveg rosalega gott Grin Sæþór Helgi var líka mjög ánægður með að fara þangað, hann bara gargaði pínu á okkur þarna inni, en það var bara sætt InLove svo fórum við heim og höfðum voða gaman.

En hvað er með þessi litlu kríli ? Þau virðast alltaf komast upp með mikið meira við okkur foreldrana en aðra, svosem afa og ömmur og annað fólk. Það er allavega einhver kenning eða eitthvað sem segir til um það !!! En mín kenning er sú að fólkið í kringum okkur lætur allt eftir þeim, þessvegna þurfa þau ekki að vera með frekju Wink Allavega ef að Sæþór Helgi fer til langömmu sinnar eða Öldu eða Jónínu ömmu sinnar, þá hef ég ekki vitað til þess að hann fái ekki ís og alle græjer þar sko, svo að það hlýtur að veraTounge Hvað haldið þið hin ?


« Fyrri síða

Um bloggið

Inga Lára Helgadóttir

Höfundur

Inga Lára Helgadóttir
Inga Lára Helgadóttir

Mér datt í hug að opna blogg, bara til að vera eins og Steingrímur stóri bróðir minn

Er nemi í Háskóla Íslands í félagsráðgjöf, húsmóðir með barn og mann og svo er ég í 40% starfi á Geðsviði LSH, á deild 33A

Ég hef gaman af blogginu og kem hér inn með mínar skoðanir og fleira sem mér dettur í hug að ræða. En vil endilega fá speglun á þær og viðhorf annarra.  Mínar eru ekki alltaf réttar og þá er gott að fá sjónarmið annarra ..... 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ar_2008_002
  • Sófi til sölu
  • Hann er ekki alveg að sofna.
  • Vignir Bergmann tengdapabbi
  • Þrír saman

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband