Færsluflokkur: Bloggar
31.3.2007 | 12:50
Börn, unglingar og þið hin :)
Mig langar hér að koma Umboðsmanni barna á framfæri. Þangað er hægt að leita til að fá góðar upplýsingar um réttindi barna og hvert hægt sé að snúa sér í málefnum þeirra.
Umboðsmaðurinn er með velferð barna og unglinga undir átján ára aldri að leiðarljósi og vill búa þeim sem bestan hag. Þeir eru ráðgefandi í málefnum barna og unglinga og leibeina fólki. Þangað er hægt að leita til að fá upplýsingar um réttindi barna. Einnig sinna þeir því að koma með tillögur og umsagnir þegar verið er að semja frumvörp á Alþingi hvað varðar börn og unglinga.
Endilega skoðið vefinn þeirra www.umbodsmadurbarna.is sem er ekki nógu mikið auglýstur en kom mér á óvart hve miklar upplýsingar er þar að finna, þá varðandi heilbrigðsmál, skólamál og annað. Með því að skoða vefinn er hægt að gera sér betur grein fyrir því með hvað umboðsmaðurinn er að fást við og með hvað væri hægt að leita til hans með.
Mig langar að vekja á því athygli að þörfin er til staðar, þar sem fyrirspurnir frá börnum og unglingum jókst gríðarlega eftir að þeim var bent á vefinn af grunnskólakennurum í lífsleiknitímum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2007 | 18:34
Mín hugleiðing um ný lög í kynferðismálum,
Nýverið hafa lög verið tekin í gildi, varðandi kynferðisbrot sem Ágúst Ólafur barðist fyrir hetjulega. En svo er búið að lögleiða vændi, hversu ömulega sem fér minnst það hljóma.
Mig langar að koma með komment á bæði lögin fyrir sig, gaman væri einnig að fá komment frá ykkur lesendum, en mér finnst þetta svo mikil þversögn í stefnum að það hálfa væri hellingur.
Takk Ágúst Ólafur fyrir að berjast vel og duglega og marga hef ég talað við sem eru þér einnig þakklátir. Að kæra "renni ekki út" finnst mér vera frábært mál. Margar hverjar þora ekki að kæra strax, eru í svo miklu andlegu ójafnvægi að enginn getur sett sig í þeirra spor nema hafa upplifað það sjálfur. Ágúst Ólafur vann sigur fyrir allar þær sem hafa verið sviptar sjálfsvirðingunni og sálmyrtar.
Ég fekk algert sjokk þegar ég áttaði mig á því að ætti að lögleiða vændi, ég trúði því ekki og fannst þetta of vitlaust til að vera satt.
Mínar hugsanir urðu þær að mér fannst þetta skapa neikvæða ímynd fyrir konuna. Mér finnst neikvætt að sér virkilega verið að lögleiða vændi og sé ekki annað en það muni gera það að verkum að viðhorfin gagnvart því breytist. það sem er sett í lög er verið að viðurkenna sem nokkuð sem er í lagi. Ekki mundi ég vilja eiga dóttur sem væri að nálgast unglingsár í dag, þar sem klámvæðing er nokkur og verið væri að lögleiða svona atvinnu. Hvað skapar þetta annað en jákvæð viðhorf gagnvart "fagstéttinni" ? Gera þessi ný lög það að verkum að menn fá aðrar hugmyndir um kynlíf með konum, ég meina hvað eru vændiskonur annað en kynlífsleikföng karla ?
Þetta eru mínar skoðanir sem ég kom með hér að ofan og ég stend alveg undir þeim. En endilega komið með ný komment, það er gaman að sjá aðrar hliðar á sömu málunum. Mínar skoðanir þurfa ekki að vera endilega þær réttustu, en svona upplifi ég nýju lögin okkar íslendinga !
Kveðja frá Mér
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.3.2007 | 23:11
Samhyggjusamfélagið, -draumalandið mitt
Í dag búum við í þjóðfélagi þar sem einstaklingshyggja ríkir. Einstaklingshyggja er þegar við erum búin að fjarlægjast náungann, hugsum um okkar eigin hag og við erum númer eitt, tvö og þrjú. Við göngum í hjónaband með einstaklingi sem við veljum okkur (sem betur fer ), lærum það sem við viljum læra, vinnum það sem við viljum vinna með og reynum að láta aðra hafa sem minnst áhrif á okkur í þeim málum.... þó áhrifin verði alltaf einhver.
En ég sé einnig galla á því samfélgi, þar sem allir hugsa um sjálfan sig, sinn eigin hag í hverju sem er og er nokkuð sama um náungann. Hvernig væri í dag ef við færum aðeins að læra að bera umhyggju og virðingu fyrir náunganum, bera hag hans fyrir brjósti og óska honum eins vel og við óskum okkur sjálfum.
Sem dæmi langar mig að tala tilraunaverkefni sem verið er að prófa áfram í réttarkerfinu, en þá er það Sáttarumleitunarverkefnið Hringurinn sem ég tek sem dæmi.
Ef einstaklingur brýtur af sér og fær einhverja refsingu, bæði brotaþola og brotamanni líður ekki vel, finnst þeim vera óöryggir og finna fyrir öðrum slæmum tilfinningum, særindum og fleirum tilfinningum. Þegar búið er að vinna saman í þessu verkefni, þá hafa þeir einstaklingar sem hafa tekið þátt í Hringnum verið ánægðir, þeir hafa náð saman, fengið að útskýra fyrir hvorum öðrum hvernig þeim líður og sá sem braut á, fær að vita hvaða áhrif það hafði á þann sem hann braut á...... semsagt þeir fara að hugsa um tilfinningar hvors annars og hvaða afleiðingar gjörðir þeirra (brotamannsins) höfðu á einstsaklinginn (þann sem brotið var á).
Þetta er skýrt dæmi þar sem tveir menn sitthvoru megin við línuna tala saman og tjá hvorum öðrum sínar skoðanir og hvernig þeir sjá hlutina og leggja sig fram við að hlusta....
Ef svona væri farið að í samfélginu almennt, við færum að heyra hvað náunginn hefði að segja, færum að finna fyrir því að aðrir en við séu til og taka þátt í þeirra lífi, þá hef ég trú á því að okkar þjóðfélag yrði betra. það eru of margir sem hafa það ekki gott og einhvernveginn er eins og það sé betra að reyna að horfast ekki í augu við það heldur en að takast á við það. of margir lifa í fátækt í þessu alsnægtarsamfélgi, of margir sem fá þörfum sínum ekki fullnægt í heilbrigðiskerfinu eða aðra þjónustu sem þeir leita eftir að fá.
Við getum gert svo miklu miklu betur.........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
23.3.2007 | 18:50
Í lagi eða ekki í lagi ?
Já, mér var pínu brugðið þegar ég sá að Sif Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra hafði nú í annað sinn tekið fé frá eldri borgurum. Gerði manneskjan sér enga grein fyrir því hve umdeild hún var hér fyrir stuttu þegar hún réðist á sjóð eldri borgara, til að gera kostningaáróðursbæklinga fyrir sjálfa sig ? Í guðs bænum þið sem komin eru á efri ár, ekki láta hana ræna ykkur meir.
Frekar sorglegt að manneskjan skuli gera svona lagað þar sem skortur er á úrræðum fyrir okkar eldra fólk. Margir eru einmanna, eiga enga að, við fáum fréttir úr blöðum af mannlausum jarðarförum og einangrun eldri borgara er orðinn vandi sem þarf að leysa.
Staðan á landsbyggðinni um aðstoð til þeirra sem eiga við heilsufarsleg vandamál að stríða er mjög slæm. Getið er þess í lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999, að þeir sem þurfa á aðstoð að halda, eins og þeir sem eru með heilabilun eða aðra sjúkdóma, eiga rétt á að fá þörfum sínum mætt, semsagt fá þjónustu frá ríkinu. Ekki get ég séð að ríkið hafi mætt þörfum þeirra, heldur eru það Aðstandendasamtök alzheimersjúkra sem hafa barist þar hörðum höndum. Þeir sem glíma við alzheimer á landsbyggðinni geta ekki fengið þar viðeigandi hjálp.
Í dag sá ég hana í blaðinu vera að baka góðgæti og einnig fisk, datt í hug hvort Sif væri að nota peninga eldri borgara við að elda í matinn heima hjá sér
Ekki finnst mér það góðs viti að hún vilji ekki veita SÁÁ sama fjármagn og þau hafa fengið hingað til, þar sem hún telur SÁÁ vera rekið í halla. En er stofnunin ekki að sinna þörfum einstaklinga ? Hvernig fer ef stofnunin getur ekki tekið á móti fólki ? Þurfa alkóhólistar og fíklar að leita annað ? Geta fangar ekki fengið viðeigandi meðferð og stuðning áður en þeir fara úr fangelsunum út í samfélgið aftur ? Þeir hafa hingað til getað tekið 6 vikur af dómi sínum út í meðferðum. Munu áfengis- og fíkniefnavandinn aukast ? Hver eru markmið hennar í þessum málum ? og hverjar verða afleiðingarnar ?
Þórarinn Tyrfingsson er nýbúinn að koma með þá yfirlýsingu að sprautufíklum fari fækkandi. Til þess þarf fjármagn......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.3.2007 | 10:48
Aðeins meira um útlendinga....
Fyrir nokkru heyrði ég síðast að útlendingar hefðu það svo rosalega gott að komast hingað, að þeir hefðu ekki yfir neinu að kvarta og ættu að vera þakklátir og ekkert annað. Hef mikið heyrt af þessum viðhorfum frá fólki sem eru af íslenska stofninum
En þannig er mál með vexti að mart er ekki sem sýnist. Jú, við getum boðið fólki hingað, en hvað með þjónustuna við þau ?
Hingað kemur kona frá fjarlægu landi, hún talar ekki tungumálið og er hálfpartinn mál- og heyrnarlaus, þar sem enginn skilur hana og hún skilur ekki aðra. Til að láta enda ná saman, þá er hún kannski að vinna á Granda í fiski allan daginn, hefur vaknað snemma um morguninn, eftir þann vinnudag fer hún að skúra og kemur heim seint á kvöldin. Fjölskyldan hennar úti sem ákvað að senda hana hingað til að afla tekna saknar hennar og hún saknar þeirra. Hún á jafnvel börn sem hinar konurnar í fjölskyldunni sjá um fyrir hana meðan hún er hér, en líklega fer það þannig að eftir einhvern árafjölda fær hún börnin loksins til sín hingað.
Hún hefur varla getað farið á ísl. námskeið þar sem það er dýrt og einnig vegna tímaleysis, ef hún ætlar að hafa það af hér, þá þarf hún að VINNA. Þetta verður einskonar vítarhringur.
Fjölskyldan er komin til hennar, krakkar sem ekki kunna tungumálið, en þau yngri eiga auðveldara með að læra inni á leikskólunum þar sem þau eru opnari fyrir að læra og fljótari, því það reynist erfiaðara að læra tungumál eftir því sem manneskjan eldist.
það sem er svo ljótt við þetta allt er að börn eru notuð sem túlkar fyrir foreldra sína, í bönkum, hjá læknum og á fleiri stöðum. Börnin fá að vita um hin ýmsu mál sem þau hafa ekki þroska fyrir. Barn hefur þurft að segja foreldri sínu að það sé hættulega veikt. Barnið fær ekki að vera barn, heldur þarf það að taka þátt í alvöru lífsins, því að ekki er nógu mikið fjármagn hjá spítölum og fleiri aðilum til að hafa túlka. Þetta fjármagn mætti nú alveg fara að aukast aðeins.
Svo er engan veginn búist við því að eldra fólk sem hingað kemur muni þurfa á þjónustu að halda á sjúkrahúsum og stofnunum, þar sem þau eru í umhverfi sem þau þekkja engan veginn og geta ekkert tjáð sig. Ég veit til þess annarsstaðar í Evrópu að verið er að mæta þörfum þeirra með því að koma upp elliheimilum sem eru fyrir þennan ákveðna hóp. Þar geta þau talað saman, skilið hvort annað og notið þess meira.
Með leikskólabörnin, af hverju er ekki meira gert fyrir þau, fengin manneskja sem getur talað við þau meðan þau eru í aðlögun, en leggja samt alla áherslu á að þau kunni tungumálið. Mér skilst að Fellaskóli sé eini skólinn þar sem verið er að taka vel á því að þar séu börn af hinum ýmsu kynþáttum og ber okkur að vera jákvæð gagnvart því. En hvað með hina skólana ?
Hingað var gott að fá ódýrt vinnuafl, en það er eins og ekki sé búist við því að þau hafi sínar þarfir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
13.3.2007 | 21:52
Góðar stundir :)
Ég var að lesa blogg bróður míns áðan (lehamzdr), þar sem hann var að tala um lífsins lottó, að eiga fjölskyldu sína, börnin eru það mikilvægasta sem við eigum Ég á sjálf lítinn son og nýt þess svo að eiga stundir með honum og gera það sem honum finnst gaman. Um daginn td. fórum við saman í strætó og tókum alveg næstum eins og hálfs klukkustundarkeyrslu með honum...... þið hefðuð átt að sjá hann litla minn , hann var svo glaður
, en það sem veitir honum gleði, veitir mér algera fyllingu í lífið
Ég var einnig að fá skemmtileg komment frá einum hér í blogginu mínu á undan, þar sem ég sé mjög fallega foreldrahugsun .
Í dag búum við íslendingarí samfélagi í Vesturheimi þar sem ríkir einstaklingshyggja og því skiptir miklu máli að halda miklu, góðu og hlýju sambandi við sína nánustu. Fólk er alltaf sífellt að tala um að hittast og gera eitthvað, svo verður ekkert úr neinu.... En mér finnst skipta svo miklu máli að eiga góð samskipti við mína nánustu, ég heimsæki fjölskyldu mína nokkuð oft og vil rækta samband mitt við fólk sem mér þykir vænt um. Ég fór td. í dag og hitti bróður minn og við fengum okkur að borða og kjöftuðum mikið saman og ég fekk nánari fréttir af krílunum hans, sem eru semsagt frændsystkini mín og það var mjög gaman að fá að fylgjast með þeim
Ég var hér árum áður alltaf að flýta mér svo mikið, mátti ekki vera að neinu og hélt að lífið væri að hlaupa frá mér, en svo þegar ég leyfi mér að njóta þess að vera til, þá er eins og allt gangi upp fyrirhafnarlaust . Að setjast niður með lesbók fyrir skólann og vera búin að dekra við drenginn og sjá hann svona glaðann, þá hef ég varla fyrir náminu
hehe
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.3.2007 | 11:03
Litlu krílin með pizzurnar sínar,
Ég spurði son minn hann Sæþór Helga hvað hann vildi fá í kvöldmat, hann glotti lengi og ætlaði ekki að vilja svara mér.....svo sagði hann pizzu
Mér finnst þetta alveg þrælskondið, þó að öðrum finnist það kannski alveg hræðilegt að tveggja og hálfsárs barn skuli vilja pizzu ..... en ég hélt einmitt að þetta væri eitthvað tískusukkfæði, en það getur ekki verið, þar sem börnin eru svo heiðarleg
Um daginn þegar ég náði í hann í leikskólann, þá voru þau að leika með trölladeig og hann vildi ólmur sýna mér pizzuna sína þegar ég kom að ná í hann, svo voru þarna nokkrar raddir fyrir innan sem horfðu á mig og bentu á borðið fyrir framan sig og sögðu "pizza" þetta var svo hrikalega sætt. Hann bað mig sko um pizzu í kvöldmat í kvöld, svo síðast þegar hann bað um pizzu var núna í dag..... en hann fær svoleiðis næstu helgi
'Eg var ekki svona ung þegar ég borðaði pizzu sjálf (þó ég hafi nú verið mjög hrifin af þeim síðan) en fyrir einhverjum örfáum árum síðan þegar ég var á leikskólanum, þá hefði enginn bakað pizzu af okkur krökkunum...... en þeim litlu þykir þetta greinilega gott..... svo ég ætla nú að fara að láta það eftir mínum að fá eina slíka mjög fljótlega ......... allt er gott í hófi er það ekki
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.3.2007 | 23:09
Hvar endar þetta allt ? (er samt ekki feministi)
Jæja gott fólk
Ein af þeim í feministahreyfingunni skrifaði um daginn á bloggið sitt um forsíðuna á Smáralindarbæklingnum. En þó þér lesandi góður ætti að vera þegar kunnugt um málið, þá mun ég samt skýra aðeins frá.
Þannig var að stúlka var framan á blaðinu, látin standa í stellingu sem mörgum karlmönnum gæti þótt frekar eggjandi og með opinn munninn. En mér er spurt, þar sem fermingarbarn er látið standa innan um sakleysisleg leikföng í þessari stellingu, hvað það var eiginlega sem vakti fyrir þeim sem tóku myndina ? Er þetta hversdagsleg stelling stúlkna í daglegu lífi ? svona í verslunum, skólanum og annarsstaðar ?.... og mér finnst eitt annað svolítið furðulegt, það er hvað mörgum datt í hug eitthvað kynferðislegt við myndina þótt þeir séu ekki feministar
Ég mundi sko seint kalla mig feminista, allavega gæti manneskja með mína hugsun ekki flokkast sem feministi, þó ég ætli nú ekki alveg að afhjúpa mig hér ... en það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá myndina var "þetta er nú frekar neyðarlegt fyrir aumingja stelpuna", eða eitthvað í þá áttina.
Eins og allavega maðurinn minn og kannski tveir eða þrír í viðbót, þá hef ég séð bláar myndir... úps, afhjúpaði mig pínu og þar eru konur gjarnan að reyna að vera eggjandi og með opinn munninn, annaðhvort stynjandi eða eiga von á öðru, svo hver var hugsunin á bak við myndina ?
Eins og hefur komist til tals og menn eru orðnir nokkuð fróðir um, þá hefur nekt kvenna og lauslæti aðeins komið upp á yfirborðið, og þá aðeins of mikið hjá ungum stelpum. Ég man þegar ég var í Breiðholtsskóla á mínum unglingsárum, þá vorum við stelpurnar aðeins þægari en gengur og gerist í dag og það var stórfrétt ef einhver lét ekki eins og siðuð póstulínsdúkka. En í dag, þá eru stúlkur farnar að gera ýmsa hluti til að komast inn í partý og annað slíkt. Fyrirmyndir þeirra sem eru kannski erlendar söngkonur eru næstum klæddar eins og súludansmeyjar meðan þær syngja og svörtu rappararnir eru með hálfnaktar konur að dilla rassinum í þá meðan þeir eru að syngja.... svo er skrýtið þó ungar stúlkur séu farnar að klæða sig frekar fáklætt og telja kynlíf vera nokkuð jafneðlilegt og álegg á brauð ?
Fyrir ekki löngu síðan, þá var ég stödd inn í LaZensa (svona til að afhjúpa mig aðeins meira) en þar inni var kona sem spurði stúlku sem var við hlið hennar, hvort að það sem hún héldi á væri nógu stórt á aðra stúlku, því hún væri aðeins ellefu ára gömul ? Ég sá allavega enga mæta í æsandi G-streng og brjósthaldara á meðan ég var í ellefu ára bekk ,,, og okkur stelpunum þótti alveg nog að hafa kysst einhvern strák, en litum á hitt meira sem eitthvað framtíðarkrukkkkkkkkk.
Ég er fullmeðvituð um það að oft þegar stelpur segja eitthvað, er það jafnvel bara í kjaftinum á þeim, en þegar ungar stúlkur eru farnar að akta kynferðislega og farnar að sofa hjá til að auka vinsældir sínar og fá að komast inn í partý, þá er mér spurt hvað við séum að gera rangt ?
Takk fyrir lesturinn,
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.3.2007 | 13:51
Tilkynningarskylda almennings,
Í fjórða kafla barnaverndarlaga, nr. 80/2002 er að finna kafla um tilkynningaskyldu almennings gagnvart því sem viðkemur börnum.
16. gr. Tilkynningaskylda almennings.
Hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunnandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða ofbldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu er skylt að tilkynna það barnaverndarnefnd.
Annars er hverjum manni rétt að gera barnaverndarnefnd viðvart um hvert það tilvik sem telja má að hún eigi að láta sig varða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2007 | 13:21
Alger vanræksla !
Mig langar aðeins að koma með smá skrif hér, sérstaklega þar sem ég hef ekki skrifað lengi
Þannig er að mér finnst vera orðið svo algengt á almannafæri að foreldrar komi illa fram við börn sín. Um daginn fór ég augnablik á útsölumarkað hjá 66 Norður. Þar komu tvö tilfelli þar sem ég var í vafa með hvort ætti að kalla til lögreglu eða ekki eða hafa samband við barnaverndaryfirvöld. En í báðum tilfellunum þar voru konur sem voru með börn á svipuðum aldri og sonur minn er...... hann Sæþór Helgi sæti sem er ekki orðinn tveggja og hálfs árs gamall.
Fyrri konan gargaði á dóttur sína að þegja og hætta að vera svona ógeðslega leiðinleg og sagðist ætla að skilja hana eftir næst þegar hún færi í búðir.
Seinni konan var líka með stúlku, dró hana eftir gólfinu, öskraði á hana og hótaði henni að henda henni út í bíl og láta hana vera þar eina
Þetta eru ekki einu dæmin, ég gæti nefnt fullt af dæmum þar sem mér er afar misboðið að sjá foreldra öskra á börn, hrifsa í þau og einfaldlega að nenna ekki að hafa fyrir þeim. Það er ekki óalgeng sjón að sjá jafnvel lítið barn standa eitt í búðarkerru í verslunum og foreldrið er gersamlega ekkert að hugsa um hvað barnið er að gera. Vil benda á það að árið 2005 voru yfir 100 slys þar sem börn höfðu verið í búðarkerrum og mörg þeirra voru alvarleg.
Núna upp á síðkastið hef ég séð í tvígang þar sem börnum hefur verið hent inn í bíla án þess að vera með bílstól, í fyrra skiptið var barnið sett í farþegasætið við hlið bílstjóra. Í bæði skiptin náði ég að klúðra því að taka niður númer bílsins, þar sem þarna voru margir bílar á bílastæði og ég var með son minn með mér sem ég þurfti að huga að þar sem ég var með fullar hendur og að passa að hann færi ekki út á götu
Mig langar að heyra frá ykkur lesendum hvort þið tilkynnið svona mál eða ekki ? Látið þið ykkur ekkert varða ef barn er í hættu ? Farið þið í burtu og gagnrýnið foreldri barnsins fyrir vanrækslu á meðan þið sjálf vanrækið tilkynningaskyldu ykkar, eða látið þið vita ?
Skilgreining á vanrækslu: þegar nokkuð er ekki gert sem þarf að gera, semsagt þegar gæta þarf að barni en það er ekki gert. Þveröfugt á við ofbeldi, því það er nokkuð sem einhver gerir en mætti sleppa að gera, en þarna er ekki gert það sem þarf að gera.
Kveðja Inga sæta
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Inga Lára Helgadóttir
Bloggvinir
-
lehamzdr
-
gislihjalmar
-
svenni
-
sigurdurkari
-
kolbrunb
-
madamhex
-
otti
-
helgahaarde
-
agustolafur
-
doggpals
-
astamoller
-
jonmagnusson
-
harhar33
-
prakkarinn
-
maggib
-
gummisteingrims
-
sveinnhj
-
kiddip
-
borgar
-
juliusvalsson
-
hrafnathing
-
bryndisisfold
-
truno
-
vakafls
-
mariaannakristjansdottir
-
grazyna
-
bjorkv
-
laugardalur
-
stefaniasig
-
kosningar
-
kiddirokk
-
skarfur
-
gesturgudjonsson
-
lara
-
birgir
-
nielsen
-
hreinsi
-
gudfinna
-
fanney
-
magnusthor
-
haukurn
-
sigmarg
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
olavia
-
birkire
-
obv
-
malacai
-
almaogfreyja
-
sabroe
-
audbergur
-
reykur
-
asgerdurjoh
-
bogl
-
bjarnihardar
-
bjartmarinn
-
bjornf
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
saxi
-
ellasprella
-
ellasiggag
-
ea
-
fsfi
-
gtg
-
eddabjo
-
gudbjorggreta
-
vglilja
-
gudrunmagnea
-
gunz
-
coke
-
hannesgi
-
heimirh
-
hlf
-
blekpenni
-
drum
-
hvitiriddarinn
-
hogni
-
ibb
-
snjokall
-
nonniblogg
-
jobbisig
-
kristbjorg
-
hjolaferd
-
krizziuz
-
meistarinn
-
mullis
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
perlaoghvolparnir
-
siggiulfars
-
pandora
-
sterlends
-
saethorhelgi
-
tara
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
- visindi
-
tolliagustar
-
steinibriem
-
nupur
-
torduringi
-
thorirniels
-
oddikennari
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar