Færsluflokkur: Bloggar
19.4.2007 | 13:42
Uppbyggileg réttvísi
Ein ný leið innan réttarkerfisins hefur heillað mig mjög mikið, sérstaklega þar sem ég hef verið að leggja smá áherslu á réttarfélagsráðgjöf í mínu námi
Uppbyggilegri réttvísi er þannig háttað að einstaklingur A brýtur á einstaklingi B á einn eða annan hátt, td. með því að brjóta grindverkið í garðinum hjá honum, bara svona til að taka dæmi
Þá er notuð sáttarumleitun til að ganga í málin. Bæði A og B eru kallaðir fyrir ásamt sáttarumleitunar manni. Sá maður sér um sáttarumleitunina og sér til þess að hún fari vel fram og að hvorugur einstaklingur niðurlægi annan. Bæði A og B þurfa að samþykkja að fara þessa leið.
Felst sáttarumleitunin í því að sætta þá A og B, þeir fá báðir tækifæri til þess að tjá viðhorf sín á málinu, gerandinn fær tækifæri til að tjá sig ef hann hefur framið verknaðinn í reiði út í þolandann og þolandinn fær einnig möguleika að tjá gerandanum þær afleiðingar sem brotið hafði í för með sér og hvernig honum líður með það.
Gerandi og þolandi ásamt sáttarmanni komast að niðurstöðu um það hvernig gerandinn getur bætt þolanda brotið, þá er það verkefni sáttarmans að gæta þess að báðir aðilar verði sáttir við niðurstöðuna, að brotamaður fái ekki niðurlægjandi refsingu og að refsing sé ekki meiri en lög heimila.
Hér á landi er hægt að taka Hringinn sem dæmi, en það er samstarfsverkefni lögreglunnar í Reykjavík og Miðgarðs í Grafarvogi. Sú starfsemi er ætluð unglingum og börnum og hefur rannsókn sem gerð var á notendum þjónustunnar leitt í ljós að bæði gerendur og þolendur voru með neikvæðar tilfinningar áður en brotið átti sér stað. Þá var það reiði, ótti, kvíði og annað sem einkenndi líðan þeirra, en eftir samstarfið, þá leið þeim betur, þeir fundu í flestum tilfellum fyrir sátt og voru ánægðir að fá að taka þátt í verkefninu.
Þetta leiðir til þess að gerandi fær að heyra þann sem hann braut á, lýsa því hvaða afleiðingar það hafði fyrir hann. Sá sem framdi brotið, fær einnig tækifæri að bæta fyrir það og fara ekki sakaskrá og einnig að SEGJA SATT !!!
Hvernig líður fólki þegar það lýgur ? hvernig líður þér við það ?
Ég er mjög hrifin af þessu verkefni og held að ætti að gera meira af þessu, bæði til að stuðla að betri ímynd geranda og einnig að auka öryggi þolanda, sem líður eflaust ekki vel eftir það sem á undan er gengið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.4.2007 | 00:08
Vil ekki trúa þessu....
....en það er svona.
Allir sem ég hef hitt á í dag hafa minnst á brunann í Miðbænum okkar. Fólk alveg með kökkinn í hálsinum, sem er ekki skrýtið. Þessi hús sem settu svip sinn á bæinn okkar og hafa blasað við okkur í hvert sinn sem við höfum gengið niður Laugarveginn. Ég átti mjög erfitt með mig að sjá húsin brenna svona stöðugt í sjónvarpinu og virtist vera sem enginn gæti gert neitt, þetta gekk allt svo hægt ( fyrir þann sem situr heima að horfa á tv-ið ).
Vilhjálmur borgarstjóri talar um að gera ný hús þarna í sama stíl og þau sem brunnu, hvernig mun það koma út ? Ég vona það besta, þó það sé of mikið sjokk í mér í rauninni til að sætta mig við að segja það
En eins og kemur fram er talið að hafi kviknað í út frá ljósum, ætti ekki að vera nokkuð auglóst hvaðan bruninn kom, svona um miðjan dag og full starfsemi í gangi í öllum húsunum ? finnst þetta svolítið skrýtið, en það þarf þó ekki að vera.
![]() |
Talið að eldurinn hafi kviknað út frá ljósum í söluturni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.4.2007 | 11:03
Já...... alltaf auðvelt að dæma aðra ;)
Í gær (16. apríl) lenti ég ég smá vanræðalegri stöðu.
Ég hef svo oft heyrt talað um "terrible two" að börn á tveggj ára aldrinum geti verið svo óþekk að það sé engu lagi líkt. Hér áður var talað um að berja djöfulinn úr barninu og annað slíkt, því börn á þessum aldri voru alveg áberandi óþekk
Ég hef alltaf litið svo á að foreldrar séu bara ekki hæfir í að siða börnin sín til og gera þau hlýðin og að aðrir séu bara vanhæfir í foreldrahlutverk og hef tekið sjálfa mig aldeilis til fyrirmyndar í þeim málum .....hefur fundist ég vera svona þessi mamma sem er góður uppalandi og á eftir að eiga mjög gott, heilbrigt, hlýðið og gáfað barn
EN..... ég fekk aldeilis blauta tusku framan í mig í gær, við sonur minn vorum úti að leika okkur og tími var kominn til að fara inn og elda kjúklinga. Þá neitar sonur minn að koma heim
......hann neitaði alveg stöðugt og sagðist ekki ætla að koma. Þegar ég verð nokkuð ákveðin og hann sér að hann eigi ekkert val um þetta lengur, þá gengur hann að mér og slær í mig og hraðar sér svo undan aftur. Hleypur hlæjandi í burtu
.....ég fer á eftir honum og tíni einnig upp bílana sem við vorum að leika okkur með. Vitir menn !!! allir nágrannar mínir sáu mig bera barnið inn, öskrandi og grenjandi, berjandi bílana sína í hausinn á mér og öskra "nei mamma", "nei mamma"..... reif í hárið á mér, sló í andlitið á mér og kleip mig í framan .... og mér leið eins og aula svo öskraði hann eins og villidýr allaleiðina upp á fjórðu hæð, út ganginn að hurðinni okkar og sagði svo blíðlega "hæ pabbi" þegar hann kom heim og brosti
Mér fannst þetta mjög gott á mig.........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.4.2007 | 13:50
Snilldarhugmynd ;)
Í félagsráðgjöfinni er ég að læra um fjölmenningu og fagstörf. Áfanginn hefur breytt viðhorfum mínum til muna og er ég þakklát fyrir það.
En eitt kom mér skemmtilega á óvart og datt í hug að fleiri hópar gætu gert hið sama. En þegar kennari minn sem er með okkur á námskeiðinu sagði okkur frá BA ritgerð sinni, þá sagðist hún hafa dulbúið sig sem útigangskonu og hafi lifað götulífi í nokkra daga. Ritgerðin sem hún skrifaði var um útigangsfólk. Mér þótti þetta alger snilld hjá henni og var mjög hrifin af þessu framtaki hennar. Þótti hún taka stór skref til þess að fullkomna verkið sitt....
.... en í dag eru ákveðin verk sem ég tel ekki vera unnin vel og datt mér í hug að stjórnvöld mundu gera slíkt hið sama.....
.....ég meina af hverju ekki ? Við erum með fólk sem stjórnar lífi okkar, við erum fólk sem þekkjum jafnvel allt aðrar hliðar á lífinu en þau, en samt er þeim heimilt að ráðskast með okkur
.... þá væri forvitnilegt hvernig þau gætu lifað af í hópi öryrkja, eldri borgara, nema, róna, alkóhólista og fíkla, geðsjúkra, alzheimerssjúkra og fleiri hópa.... og hefðu gott af því að heyra viðhorfin gagnvart þeim um leið, hvort sem þau eru góð eða slæm.... er ekki alltaf gott að fá komment ?????
Eflaust fengju margir aukinn skilning, víðari sýn og meiri virðingu fyrir fleiri hópum samfélagsins.
En mér fannst hugmyndin mín snilld og vonast eftir að ég fái fleiri undirtektir
Kveðja frá Ingu
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.4.2007 | 19:09
Verður þú alltaf ung/ur ?
Núna eru eflaust allir flokkar mjög spenntir fram að þeim 12. næsta mánaðar og finnst mér vera talað um að þurfi að bæta hag eldri borgara.
En það sem mér finnst er að það þarf að gera eitthvað róttækt í þeirra málum. Það er ekki nóg að ætla að gera örlitlar breytingar og kalla það að vera rausnarlegur við þá.
Ég er sjálf í öldrunaráfanga í Háskóla Íslands og hef ég séð hve veik staða margra eldri borgara er, þá með niðurstöður úr rannsóknum og fleiru...... og svo auðvitað með því að horfa aðeins í kringum mig
Er einhver tilbúinn að gera eitthvað róttækt fyrir þennan hóp þjóðfélagsins ? Eitthvað annað en að rita fögur orð á blað sem eiga að heilla lesanda ?
Margir hverjir þurfa miklu meiri pening á milli handanna en þeir hafa núna og ná varla að lifa af. Ein sem ég talaði við í síðustu viku sagði við mig.... "ef ég þarf að fara til læknis eða kaupa dýr lyf, þá hef ég ekki efni á því".
Mér finnst þetta í ólagi þó að mörgum finnist þetta eflaust vera í lagi. En mig langar svo að sjá réttlætið koma yfir okkur í þessum málum og mér finnst einhverjar smábætur við það sem fólk fær núna í dag ekki vera nein leiðrétting eða betrumbót.....
Má vera að ég sé nöldurseggur, en þetta er eitt af þeim mörgum atriðum sem mér finnst þurfa að berjast fyrir af hörku !
Kveðja frá Mér....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.4.2007 | 21:43
LÍN !
Núna ætla ég að tala um það sem væri gott fyrir mig og aðra námsmen ....ég er viða búin að koma við í blogginu mínu, enda rosalega mart sem mig langar að segja en erfitt að koma því öllu út á sama tíma. En einhverstaðar verð ég að byrja..... og ég byrjaði allavega
En mig langar að segja að mér finnst óþarfi að vera að draga af námslánum okkar háskólafólks fyrir það sem við vinnum með námi. Lánin sem við fáum er mjög lág og mjög margir sem eiga erfitt með að lifa af á þeim. Ég sjálf þarf að skera alveg við nögl í öllu sem ég geri, leyfi mér aldrei neitt, enda er bara gaman að vera ég en það sem verra er að endar skuli ekki ná saman um hver mánaðarmót og að erfitt sé að standa í skilum með reikninga. Af hverju er þetta svona ? Mig mundi muna alveg ofboðslega, eins og flestum öðrum að vera ekki dregin niður fyrir eigin dugnað með náminu. En að vera boðið upp á svona lagað, finnst mér til skammar.
Ég veit að hefur verið talað um af skólapólintíkinni, bæði Vöku og Röskvu að reyna að koma því áfram að hækka lánin, fella niður þessa skerðingu og gera hluta af lánunum að styrk, en ég meina hvernig væri að byrja á að stefna að því að fella niður þessa skerðingu ? Hver fær svona mikið út úr því að lofa okkur ekki að njóta skólagöngunnar, smápeningur til viðbótar á mánuði mundi bjarga mjög miklu, en af hverju eru menn svona tregir að ná þessu í gegn ?
Ég veit að það er okkar VAL að vera í námi eins og einhverju lesendum dettur væntanlega í hug að reyna að troða ofan í kokið á mér núna, en..... það er í mínum augum ekkert val, þar sem er mjög erfitt að draga fram lífið á þvi lélega kaupi sem gjarnan er til boða fyrir ómenntað fólk. Einnig munum við skila vel af okkur seinna þegar við erum komin með öruggari vinnumöguleika, þurfum þá síður á fjárhagsaðstoð að halda, öðrum styrkjum eða atvinnuleysisbótum..... og munið, LÍN er LÁN !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.4.2007 | 22:10
Hvernig ætli það yrði ef........
...að stjórnendur þessa lands fengju að endurspegla þjóðina sjálfa. Þá er ég ekki að tala um svo margir kjósa Sjálfstæðisflokkinn og svo margir kjósa Samfylkinguna og svoleiðis, heldur einfaldlega ef að við byggjum til mynd af íbúum þjóðarinnar, sem eru komnir með kostningaraldur og myndum láta þingið okkar endurspegla þá mynd
Ákveðinn hluti þjóðarinnar eru eldri borgarar, ákveðinn hluti þjóðarinnar eru vel settir, ákveðinn hluti þjóðarinnar eru námsmenn, öryrkjar, millistéttarfólk, fátæklingar og svo framvegis.
Væri ekki betra að lofa þeim einstaklingum að taka þátt í að byggja upp stefnur og markmið sem væru ásættanleg fyrir þessa hópa ? Af hverju eiga eingöngu menn að komast að sem eru ríkir og hafa það gott ? af hverju á stjórnarfarið ekki að vera blandaðra og endurspegla þarfir einstaklinga í landinu. Það er svo mart sem þarf að laga, td. var ég að tala við eina í gær, sem á son sem er fjölfatlaður, hún sá mart sem er að og mætti fara betur, nokkuð sem aðrir mega ekkert vera að því að hugsa um og leiða varla hugann að því.
Ég er einfaldlega að segja að þeir eiga að fá að láta í sér heyra og taka þátt í stjórnarfari sem hafa vit og reynslu af því sem þeir eru að segja. Það er allavega mín skoðun
En hvað segið þið hin ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.4.2007 | 13:22
Gleðilega páska :)
Ég óska ykkur öllum gleðilegra páska og megið þið njóta vel mæði matar og eggja og eiga góða tíma með fjölskyldu og vinum
Ég hef það sjálf alveg þrusugott, mikið dekrað við mig og fæ ég sko páskagjafir þessa páskana ...ekki ósátt við það
Hafið það allra best og höldum áfram að blogga
Kveðja Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.4.2007 | 12:11
Þú ert í hinu liðinu
Mig langar að koma með nokkuð sem ég hef svo oft lagt höfuðið í bleyti yfir.
Nú eins og alltaf erum við með ríkisstjórn og stjórnarandstöðu. Hvernig ætli allt yrði hér í dag ef stjórnarandstaðan mundi nú sinna því hlutverki að vera einskonar aðhald fyrir meirihlutastjórnina, koma með ábendingar og bæði jákvæða og neikvæða gagnrýni ?
Í dag (eins og áður) þegar ég les blöð, horfi á þingið í sjónvarpi eða fylgist með umræðunni, þá eru þingmenn upp til hópa eins og litlir krakkar í hasarleik, keppast um hver ætti sterkasta pabbann eða annað slíkt. Af hverju er ekki hægt að hafa meiri samvinnu, þó menn séu ósammála ?
Ég get ekki litið á sem svo að þegar einn gagnrýnir annan, að þá fái hann einhver stig hjá mér, heldur fer ég að hugsa og spyr sjálfa mig, "af hverju talar hann ekki um hvað hann hefur sjálfur fram að færa?". Að lifa í samfélagi, þar sem sandkassakrakkarnir eru að rífast og stjórna landinu um leið (á við um alla flokka) þá verður mér frekar spurt hvernig svona dæmi gangi upp ?
Fólk í pólintík eins og annarsstaðar virðist ekki koma alltaf fram af eigin verðleika heldur að setja neikvætt út á aðra. Þá er mér hugsað um grunnskólastúlkurnar sem fóru að ljúga upp á hvor aðra til að koma sjálfri sér á framfæri.
Ætli allt í kringum okkur mundi kannski ganga betur ef fólk færi að sýna hvort öðru meiri virðingu en áður, við erum fólk hvort sem við erum að styðja Sjálfstæðisflokk, Samfylkinguna, V- græna eða aðra...... eða er það ekki annars ? Kannski það mundi auka á hamingjuna
Make peace !!!! hver vill hafa það sem kosningarloforð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
31.3.2007 | 13:55
Er ekki tekið mark á Davíð ?
Mér finnst ótrúlegt þar sem mikið er talað um þennsluna í þjóðfélaginu og að verði að ná ákveðnu jafnvægi á fjármálamarkaði. Er ekki hlustað á Davíð þar sem hann segir að álver megi ekki reisa strax ? Verður það í þessu eins og gjarnan í svo mörgum öðrum málum að ekki verður hlustað á þann sem veit hvað hann er að segja ?
![]() |
Kosið um framtíð álversins í Hafnarfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Um bloggið
Inga Lára Helgadóttir
Bloggvinir
-
lehamzdr
-
gislihjalmar
-
svenni
-
sigurdurkari
-
kolbrunb
-
madamhex
-
otti
-
helgahaarde
-
agustolafur
-
doggpals
-
astamoller
-
jonmagnusson
-
harhar33
-
prakkarinn
-
maggib
-
gummisteingrims
-
sveinnhj
-
kiddip
-
borgar
-
juliusvalsson
-
hrafnathing
-
bryndisisfold
-
truno
-
vakafls
-
mariaannakristjansdottir
-
grazyna
-
bjorkv
-
laugardalur
-
stefaniasig
-
kosningar
-
kiddirokk
-
skarfur
-
gesturgudjonsson
-
lara
-
birgir
-
nielsen
-
hreinsi
-
gudfinna
-
fanney
-
magnusthor
-
haukurn
-
sigmarg
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
olavia
-
birkire
-
obv
-
malacai
-
almaogfreyja
-
sabroe
-
audbergur
-
reykur
-
asgerdurjoh
-
bogl
-
bjarnihardar
-
bjartmarinn
-
bjornf
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
saxi
-
ellasprella
-
ellasiggag
-
ea
-
fsfi
-
gtg
-
eddabjo
-
gudbjorggreta
-
vglilja
-
gudrunmagnea
-
gunz
-
coke
-
hannesgi
-
heimirh
-
hlf
-
blekpenni
-
drum
-
hvitiriddarinn
-
hogni
-
ibb
-
snjokall
-
nonniblogg
-
jobbisig
-
kristbjorg
-
hjolaferd
-
krizziuz
-
meistarinn
-
mullis
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
perlaoghvolparnir
-
siggiulfars
-
pandora
-
sterlends
-
saethorhelgi
-
tara
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
- visindi
-
tolliagustar
-
steinibriem
-
nupur
-
torduringi
-
thorirniels
-
oddikennari
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar