Færsluflokkur: Bloggar
6.5.2007 | 20:35
Kvennastund hjá Sjálfstæðiskonum
Við konur í Sjálfstæðisflokknum hittumst allar í dag á kosningaskrifstofunni í Mjódd, Áflabakka 14.
Stemmningin var mjög góð, nokkrar þeirra sem eru í framboði til þingkosninga núna eftir viku tóku til máls og töluðu vel.
Það var einstaklega gaman að spjalla við þær og átti ég góðar samræður við Grazynu sem er í 6. á þingmannalista Reykjavíkur norður. Hún er að mér finnst nauðsynleg í pólitíkina, þar sem hún er innflytjandi hér á landi og er mikil hugsjónamanneskja. Það var mart sem við ræddum í dag eins og um skólamálin og fleira sem heillaði mig. Ég er ánægð með hana skoðið www.grazyna.blog.is, reyndar eru flestar greinar þar á pólsku, en einnig er að finna íslenskar greinar. Þar er hún að fjalla um málefni innflytjenda. Endilega skoðið.
Önnur sem alveg stendur uppúr hjá mér er Dögg Pálsdóttir. Ég fylgist vel með blogginu hennar og finnst hún leggja mikla áherslu á aukið frelsi og réttlæti. Hún hugsar að mínu mati um velferð einstaklinga og vill leggja allt uppúr því að gera okkur lífið betra. Þá vill hún gera fólki sem skilur auðveldara fyrir og bæta réttindi þeirra sem fara með sameiginlega forsjá, hún vill bregðast við eiturlyfjavandanum sem hér er og hún er metnaðarfull að mínu mati við að hafa fjölgun hjúkrunarrýma sem forgangsatriði. Endilega skoðið síðuna www.dogg.is og lesið hvað hún hefur að segja.
Takk fyrir að lesa,
Kveðja Inga Lára
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.5.2007 | 02:04
Hvað með fjármálin ?
Það hafa margir talað um það fyrir þessar kosningar að ef vinstri stjórn tekur við, þá fari landið liggur við á hausinn
Þau rök hafa verið sett fram að vinstri menn eyði öllu fénu í heilbrigðismál og félagsmál og að það fé skili sér ekki til baka í samfélagið. Þessi hugsun hefur vakið svolítinn ótta hjá mér, þar sem ákveðinn hópur hefur ekki nógu gott í dag og kannski enn verra ef að hægri flokkar hætta við stjórn.
Einnig hefur oft verið rætt um verðbólguna hér forðum þegar þeir voru ráðendur þjóðarinnar og svo hafi Sjálfstæðisflokkur komið og greitt upp allar skuldirnar, það reynist jú vera rétt.
EN !!! mér hefur nú samt dottið í hug að ef meira fé fer í þá málaflokka sem ég nefndi hér að ofan, þá yrði mjög líklegt að fólk næði að standa fyrr á eigin fótum, ná heilsu ef það er veikt og fá viðeigandi aðstoð ef þörf er á. Eru það ekki þættir sem gera það að verkum að fólk fari aftur út á vinnumarkað og komi með meira fé inn í ríkiskassann okkar ?
Einhvernveginn finnst mér það make a sense að ef velferðarmálin séu í lagi og einnig félagslegu málin, þá auki það á vellíðan einstaklinga sem eru þá hæfari að takast á við sitt líf. Eruð þið sammála mér í því ?
Dæmi: andlegur öryrki er með svo lágar tekjur að hann nær ekki endum saman, honum líður enn ver fyrir vikið og sjálfsmyndin hverfur niður. En ef hann fengi hærri tekjur og mundi ná að lifa með höfuð reyst, væri þá ekki líklegra að hann næði með tímanum að fljúa sjálfur ?
Endilega segið mér hvað ykkur finnst ?
Kveðja Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.5.2007 | 14:31
Vextirnir og verðbólgan :( hmmm
Já ég sá á síðunni hjá Ágústi Ólafi að drengur einn fór að tala um að okkar himinháu vextir hafi verið settir á því að verðbólgan hafi verið of mikil
EN !!! þarna er verið að draga úr því að neytendur kaupi meira og meira og því eru settir á himinháir vextir, en ein spurning, á hverjum eru vextirnir að bitna ?
Ég veit um einstakinga sem hika ekki við að taka sér hærri bankalán því að þeir hafa lítið fyrir því að greiða þessa vexti, en svo koma þeir sem minna hafa á milli handanna og geta varla greitt vexti af þeim lánum sem þeir þurfa að hafa ,,,svo að þetta er að margra mati mjög rangt og margir hafa tekið undir þetta með mér.
Háir vextir gera semsagt þá sem hafa lítið sem ekkert hafa þá enn minna og það er dapurlegt, það er allavega að bitna á mínu lífi sem námsmanneskju
Svo að enn og aftur vil ég meina að þessi hagfræðihugtök séu sniðnir að þeim ríku en ekki þeim sem hafa minna fé á milli handanna
Kveðja Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.5.2007 | 14:19
Oh, eitthvað svo mikið vesen :(
Já, ég er búin að velta því fyrir mér, að ef ég mætti búa bara sjálf til einn stjórnmálaflokk, þá væri ég líklega búin að leysa vandamál þjóðarinnar
Ég er svo hrifin af einstaklingum sem eru miðjumenn að mínu mati og vilja stjórna á þann hátt að sem flestir njóti góðs af.
Væri ekki gott að hafa landið eitt kjörsvæði og að við ættum að kjósa menn, ekki flokka. Auðvitað eru margir innan míns flokks sem ég er ánægð með, þá sérstaklega eins og Sigurð Kára (eins og flestir sem mig þekkja vita) og Illuga, Dögg Pálsdóttur og fleiri. Einnig varaþingmanninn okkar hana Kolbrúnu Baldursdóttur sem er sálfræðingur að mennt og manneskja sem ég ber mjög miklar virðingu fyrir.
En hvað með aðra, eins og Ágúst Ólaf Ágústsson, Jón Magnússon og fleiri, Jóhönnu Sigurðar sem setti rammalögin á félagsþjónusturnar hér á landi árið 1991 ? Þarna er einnig fólk mér að skapi Fólk sem ég ber mikla virðingu fyrir og finnst að ætti einnig að hlusta á.
Hvað finnst ykkur lesendum, ættum við að kjósa fólk ?
Kveðja Inga Lára
Ps. nú er örugglega einhvern sem langar að berja mig
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
1.5.2007 | 15:30
Best að láta þá sjálfa um að tala :)
Hér kemur heimasíða Sjálfstæðismanna í Breiðhotli, en hverfafélögin eru þrjú talsins. Þau skiptast niður svona: Bakka- og Stekkjahverfi, Skóga- og Seljahverfi og að lokum Hóla- og Fellahverfi.
slóðin er eftirfarandi: www.breidholtid.is
Hér eru einnig stutt myndbrot af frambjóðendum og fleirum sem segja hversvegna þeir kjósa flokkinn : www.breidholtid.is/?id=171
Ég hvet ykkur til að skoða vefinn og draga þá ályktun eftir það. Ekki verra að vita af hverju maður dregur ályktanir
Kveðja Inga Lára
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.5.2007 | 00:06
Finnst VG vera pínu skrýtnir....
Já ég get ekki sagt annað en að mér finnist þeir pínu skrýtnir sko Ég hef hlustað á þá einmitt nokkur skipti í viðtölum og öðru og hvernig þeir geta látið er alveg ótrúlegt.
þá er ég einmitt að hugsa um hvernig var í gær, þegar Sigurður Kári úr XD og einn græninginn mættust í viðtali og farið var út í að tala um varnarmálin. Sigurður Kári benti réttilega á hvernig kæmi sér vel að vera með annari Norðurlandaþjóð varðandi tæki og annað slíkt, en elsku aumingja græninginn sem var í viðtalinu var nú alveg að missa sig í vitleysuinni. Hann hefði frekar átt að segja ekki neitt en að bulla svona. Það var svo yfirnáttúrulega barnalegt (að mér fannst) að spurja hvort að ætti að eyðinleggja fyrir þeim sem höfðu gaman af því að ferðast, ef að ætti að stunda æfingaflug yfir landinu ? Einnig vildi hann meina að verið væri að fá okkur til liðs með sér, svo að flugið gæti átt sér stað að hluta hér svo að mengunin mundi dreifast yfir til okkar líka .... æi mér fannst þetta eitthvað svo aumt svar.... gat ekki af því gert.
Svarið datt upp úr mér um leið og Sigurður Kári svaraði: "Ertu að grínast?" Viðtalið í heildina var svona.... semsagt algert bull og bullshit
Ég eiginlega vorkenndi Sigurði Kára þar sem hann er einn af mínum uppáhaldsmönnum að þurfa að standa í svona löguðu, að vera að ræða við mann sem hafði EKKERT að segja..... nákvæmlega ekki neitt. Er þetta það sem menn vilja kalla yfir sig ?
En það er ekki hægt að taka það af þeim í VG að það er ýmislegt sem þeir vilja gera gott og það er virðingavert að mér finnst....
Svo byrja allir að skjóta og við þvi er alveg að búast
Kveðja Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2007 | 22:10
Pólintískur fundur í Háskóla Íslands...
Jæja nú kom loksins að því að ég mætti á pólintískan fund í Háskóla Íslands, sem var haldinn í fyrradag, þann 26. apríl.
Það var ansi gaman að hlusta á þá sem tóku til máls, en mér fannst þetta yfir höfuð svolítið í lausu lofti, þar sem ég var engu nær eftir slíkan fund. Ég fylgist jú með pólintíkinni og veit nokkurnveginn um hvað sé að gerast þar,...... EN eftir einn svona fund og vera engu bættari sérstaklega þar sem ræður þingmannanna snérust að miklu almennt um stefnur þeirra, en þessi fundur átti að fjalla um það hvað þingflokkarnir vildu gera fyrir okkur skólafólk.
Katrín Jakobsdóttir úr VG var sú eina sem talaði um að hækka við okkur námslánin, það er einmitt það sem við námsfólk þurfum á að halda , svo fór reyndar of löng umræða í umhverfismálin hjá henni og annað slíkt. Mörður Árnason og Magnús Þór úr Frjálslyndum töluðu einnig um það í fyrirspurnartímanum, en það var leiðinlegt að heyra hvorugan þingmann úr ríkisstjórnaflokkunum tala um það sem sjálfsagt.
Eitt sem böggar mig svolítið er það að mér finnst vont að ekki séu birtar almennilegar niðurstöður um þau málefni sem snúa að okkur háskólanemum. þá er ég að tala um það hvar okkar háskóli stendur miðað við aðra háskóla í gæðum séð og hve mikið brottfall sé og hve hátt hlutfall þjóðarinnar er háskólagengið.
Niðurstöðurnar eru mjög mismunandi eftir því hvaða flokk ég heyri í, en eina sem ég veit er það að fyrir einstakling sem er búinn að vera á vinnumarkaði er mjög erfitt að komast aftur í nám, þá bæði vegna skerðina og svo er búið að koma undir sig fótunum og mjög erfitt að verða fyrir miklum tekjumissi. Þar kom Mörður Árnason fyrir hönd Samfylkingarinnar með góðar niðurstöður í þeim málum. Einnig hef ég dáðst að því sem Ágúst Ólafur hefur skrifað um námsfólk.
Sigurður Kári kom með það sem Sjálfstæðisflokkur hefur gert varðandi menntamál og nefndi einnig mörg góð atriði þar, eins og með fjölbreytileikann í náminu og hve mikil aukning hefur orðið á háskólafólki. Það sem olli mér vonbrigðum var að mér fannst hann ekki horfa raunsætt í það hve erfitt getur verið að vera námsmaður í dag.
Ekki finnst mér okkur námsfólki vera tryggt gott menntaumhverfi með að hafa allt upp að 50 nemendur á hvern kennara í háskólanum, þegar ættu að vera þónokkuð undir 20 nemendur á hvern kennara. Gæði kennslunnar tapast og kennari þekkir hefur þá ekki nógu góð tengsli við nemendur sína.
Einnig verður að tryggja okkur fjárhagslegt öryggi á meðan námi stendur, það græðir enginn á því að háskólafólk skuli ekki getað staðið í skilum og náð fjárhagslegum endum saman hvern mánuð.
Kveðja Inga Lára
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2007 | 19:22
Varðandi nám barna í grunnskólum.
Í dag eru grunnskólar nokkuð einsleitir, þá er ég að meina að börn eru að mestu leiti að læra það sama, á sama tíma og taka eins próf og eru öll metin á sama hátt, en ekki er gerður greinamunur á því að börn eru ekki eins og þroski þeirra er misjafnlega hraður
Ég sé enga ástæðu til þess að bera börn saman við önnur. Ég man þegar ég var í grunnskóla og sömu börnin voru að fá lágar einkunnir og kennararnir voru jafnvel að bera þau saman upphátt við aðra nemendur í bekknum, það hefur verið mjög niðurlægjandi. Ég reyndar lenti í því eitt sinn í dönsku og hef sem betur fer ekki þurft að vera í þessum pakka neitt meira en það
Einn ágætur kennismiður um þroska var Piaget, hann kom með það að börn ættu að læra fyrst af umhverfi sínu, s.s. af hljóðfærum, leikjum og öðru. Seinna þegar vit þeirra og þroski og uppgötvanir væru að færast í aukanna, ætti fær kennari að koma með verkefni og annað slíkt sem mundi ýta undir þann þroska sem ætti sér stað á þeim tíma.
Einnig sagði hann að börn ættu að vera metin hvert og eitt, semsagt að meta barn eftir eigin frammistöðu en ekki eftir því hvert ákveðið meðaltal væri
Mér datt í hug, þar sem einhverjum börnum leiðist í skóla í dag, bæði vegna þess að sum eru mjög fljót að læra og önnur eru aðeins lengur að læra, af hverju er námsefni ekki miðað við hvern og einn nemanda. Af hverju fær hver og einn ekki einkunn miðað við eigin frammistöðu og eigin dugnað sem er samkvæmt þroska hvers barns fyrir sig ?
Ég veit að einhver verður grænn í framan núna og spyr sjálfan sig, "hvernig ætti að vera hægt að sinna öllum nemendum svona ýtarlega ? Það eru fleiri þúsundir nemenda ?"
EN !!! Jannski börnin færu betur undirbúin út í lífið, með meira sjálfstraust og fleira. Borga ætti kennurum hærri laun og einnig að hafa fámennari bekki. Ég get ekki sagt að mér lítist eitthvað illa á þessa hugmynd Piaget ? Ég held að öðru eins sé eitt í vitleysu í þessu þjóðfélagi og ekki veitti af því að eyða í börnin okkar !!
Kveðja Inga Lára
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
21.4.2007 | 21:05
Ríkið á að vinna fyrir okkur
Já, ég heyri svo oft fólk tala um að hinn og þessi pólintíkus stjórni okkur og mér finnst fólk tala oft um pólintíkusa eins og þeir séu einhverjir guðir. Alveg eins og þegar Marx fer að tala um að "þjóðfélagið" sem var skapað af mönnum var allt í einu farið að stjórna mönnunum sjálfum. Semsagt menn fóru að tala um að þjóðfélagið væri svona og svona, samt skapa mennirnir þjóðfélagið sjálfir. Minnir að Marx hafi komið með orðið firringu yfir svona lagað.
Mér finnst þetta svo einfalt, við fæðumst öll (auðvitað) og tökum okkur ýmis störf fyrir hendur og höfum mismunandi áhugamál. Svo eru einstaklingar sem hafa áhuga á að sinna þing- eða sveitarstjórnarstörfum og þá geta þeir gert það og farið í framboð. En það er enginn sem segir að hann hafi eitthvað meira rétt fyrir sér en aðrir og hafi einhvern meiri tilverurétt. En viðkomandi verður jú að hafa eitthvað til bruns að bera svo hann/hún öðlist traust og trú almennings. Það er nú bara þannig.
En ég sé þetta þannig að þeir eru að vinna fyrir okkur Einfaldlega gera okkur til geðs og að mæta okkar þörfum og væntingum. Við eigum ekki að þurfa að lifa skort í þessu þjóðfélagi. Við kjósum ákveðinn flokk, sem á að sinna okkur, reka "fyrirtækið" þannig að við séum sátt. Hver hefur rétt á því að dæma um það hvort eldri borgarar eigi að fá hærri tekjur ? Ég held að flestir séu sammála um að þeir eigi betra skilið og af hverju á einhver hluti 63 einstaklinga (á þingi) að hindra það ?
Sumir kjósa að líta á það þannig að þeir séu að vinna fyrir flokkinn sinn, en málið er að flokkurinn á að vilja vinna fyrir fólkið og vera þakklátur fyrir þá sem eru tilbúnir að aðstoða þá við það.
Kveðja Inga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.4.2007 | 11:05
Hugleiðing mín um umhverfi barna
Já mér datt í hug að koma með hugleiðingu mína hingað inn, þar sem ég er búin að vera svolítið ósátt með hvað börnum er boðið uppá.
Mér finnst þurfa að hugsa betur um það umhverfi sem umlykja leikskóla og skóla. Þarna er verið að leika í boltaleikjum, hlaupaleikjum og fleira og kannski meiri líkur á að hlutir eins og grindverk og fleira skemmist, brotnar rúður og fleira. Það er óviljaverk og börn eru ekki fær um að vega og meta hvenar þau eru að leika sér á svæðum sem kannski er ekki æskilegt að leika sér á, eins og að sparka bolta í átt að rúðum. Ég gerði það hér áður þegar ég var að leika mér í ASNA og fleirir sparkleikjum. Við gættum okkar að sparka alltaf í vegginn og aldrei kom óhapp hjá okkur, en óhöppin geta gerst.
Mér finnst hinsvegar alveg til skammar þegar umhverfi þeirra er ekki lagað Ég fer á leikvelli með son minn og finn oft ýmislegt sem mér finnst ekki í lagi. Marga daga í röð þegar ég sótti son minn á leikskólann, þá var brotin þar rúða sem blasti við okkur þegar við gengum að útidyrahurðinni. Gangstéttin fyrir framan leikskólann er ónýt, brotið upp úr henni og hún er bylgjótt, leifar af brotnu grindverki er þar einnig að finna, þar sem standa stubbar upp úr grasinu og er mjög hættulegt fyrir börnin sem þar ganga og hlaupa um.
Af hverju ekki að hafa umhverfi barnanna fallegt og kenna þeim um leið að það sé eðlilegt að halda því þannig. Ég veit að með því mundum við kenna þeim að ganga vel um og ýta undir jákvæða hugsun gagnvart umhverfi sínu. Einnig mundum við koma í veg fyrir slys, því að gangstéttar og leikvellir eru fullir af slysahættum eins og ég tók hér fram áðan, með brotnum spýtum og öðru. Ég er fullviss um að með því að hafa allt eins vel útlítandi og hægt er, þá byggjum við upp virðingu hjá börnum fyrir umhverfi sínu.
Það ætti að hugsa um að fjarlægja ónýt leiktæki, þar sem þau geta einnig valdið slysum, ég vil um leið þakka Reykjavíkurborg fyrir að fjarlægja ónýt vegasölt af lóðinni hjá mér, sem voru búin að standa þar brotin og stórhættuleg börnunum í marga mánuði.
Búum börnunum fallegt og öruggt umhverfi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Inga Lára Helgadóttir
Bloggvinir
-
lehamzdr
-
gislihjalmar
-
svenni
-
sigurdurkari
-
kolbrunb
-
madamhex
-
otti
-
helgahaarde
-
agustolafur
-
doggpals
-
astamoller
-
jonmagnusson
-
harhar33
-
prakkarinn
-
maggib
-
gummisteingrims
-
sveinnhj
-
kiddip
-
borgar
-
juliusvalsson
-
hrafnathing
-
bryndisisfold
-
truno
-
vakafls
-
mariaannakristjansdottir
-
grazyna
-
bjorkv
-
laugardalur
-
stefaniasig
-
kosningar
-
kiddirokk
-
skarfur
-
gesturgudjonsson
-
lara
-
birgir
-
nielsen
-
hreinsi
-
gudfinna
-
fanney
-
magnusthor
-
haukurn
-
sigmarg
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
olavia
-
birkire
-
obv
-
malacai
-
almaogfreyja
-
sabroe
-
audbergur
-
reykur
-
asgerdurjoh
-
bogl
-
bjarnihardar
-
bjartmarinn
-
bjornf
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
saxi
-
ellasprella
-
ellasiggag
-
ea
-
fsfi
-
gtg
-
eddabjo
-
gudbjorggreta
-
vglilja
-
gudrunmagnea
-
gunz
-
coke
-
hannesgi
-
heimirh
-
hlf
-
blekpenni
-
drum
-
hvitiriddarinn
-
hogni
-
ibb
-
snjokall
-
nonniblogg
-
jobbisig
-
kristbjorg
-
hjolaferd
-
krizziuz
-
meistarinn
-
mullis
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
perlaoghvolparnir
-
siggiulfars
-
pandora
-
sterlends
-
saethorhelgi
-
tara
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
- visindi
-
tolliagustar
-
steinibriem
-
nupur
-
torduringi
-
thorirniels
-
oddikennari
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar