Færsluflokkur: Bloggar
19.5.2007 | 09:54
Hver hefði ÞORAÐ að vona ?
Já eins og þeir vita sem hafa lesið bloggið mitt að þá er ég í skýjunum yfir samræðum þeirra Geirs og Ingibjargar.
Össur búinn að segja að allt gangi hratt og vel fyrir sér, svo að núna bíðum við öll bara og sjáum hvað gerist. Ég vona bara og ég reyndar veit að þau munu ganga frá þessu á þann hátt að bæði séu sátt, því þarna er um mjög vana stjórnmálamenn að ræða og hvorugt þeirra eru einhverjir bjánar ....þess vegna veit ég að samstarf þeirra mun ekki slitna eftir smá tíma því ég tel þau vita hvað þau eru að gera og ég treysti þeim
og það er ég sko alveg ófeimin með að skrifa hér.
Annað, fyrir þá sem ekki vissu að þá er ég í hverfafélagi Sjálfstæðismanna, en ég óskaði svo innilega að mínir menn færu í samstarf með Samfylkingu að ég þáði rós af þeim sem komu með til mín frá Samfylkingunni og hélt í henni lífi í von um að það boðaði gott...... samt er ég nú langt frá því að vera hjátrúarfull ...nema þarna.
Kveðja, Inga Lára Helgadóttir
![]() |
Össur: Unnið að samræmingu þess helsta og besta úr stefnu flokkanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
17.5.2007 | 22:31
Ljót og leiðinleg hugsun !
Mér finnst voða lélegt af þeim sem ná ekki lengra í þessari baráttu um ríkisstjórnina að þurfa að vera með eitthvað smjatt, slúður og lýgi út í þá sem eru núna í samningaviðræðum.
Geir og Jón ræddu saman í byrjun, en eins og þeir fundu út í SAMEININGU þá var ekki fótur fyrir því að halda samstarfinu áfram. En ef það er rétt að Geir hafi rætt við Ingibjörgu ÓFORMLEGA í gær, er þá eitthvað að því ? Ég meina það er í hans höndum líklegast að hefja samningsviðræður, svo er ekki í lagi að vita hvað fólk í öðrum flokkum hefur að segja ?
Eins og Guðni Ágústsson vildi halda fram í Kastljósi í kvöld, að þá væri eins og Geir hefði farið á bakvið þá í Framsókn eða "haldið framhjá þeim". Þvílík steypa Ef það væri í mínum höndum að taka á mig eitthvert stórt verkefni og að ræða og semja við fólk, þá mundi ég líklega vilja fá að vita hvað þeir einstaklingar væru að hugsa.
Mér finnst þetta virðingaleysi við Geir og mér finnst Guðni gera lítið úr sér að láta þetta útúr sér, þar sem Framsókn var búin að gefa til kynna að þeir vildu ekki halda áfram og að það væri ekki Sjálfstæðisflokkur sem hefði ákveðið það einn.
Það er í raun alveg sama hvernig þetta hefði endað allt hjá þeim, þá eru margir einstaklingar örugglega tilbúnir að gera lítið bæði úr Geir og Ingibjörgu, þeir sem töpuðu sættu sig ekki við það og auðvitað er svolítið þæginlegt að klína því tapi yfir á aðra og kalla þá óheiðarlega.
Kveðja Inga Lára Helgadóttir.
PS. Geir, drífðu þig nú að þessu , Ingibjörg, You go girl
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.5.2007 | 16:48
Loksins, húrra húrra :)
Jæja, það var mikill léttir þegar ég horfði á áðan í fréttum á Stöð 2 að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur ætluðu sér ekki að halda samstarfinu áfram í ríkisstjórn Loksins segi ég !!!
Ég vissi að Geir mundi gleðja okkur með þessu og ég var mjög ánægð að sjá að hann ætlar sér að tala við Ingibjörgu Sólrúnu og langar mig svona helst að þau nái saman
Núna er bara að bíða og vona, með krosslagða fingur og hvetja Geir og Ingibjörgu í að ná samningum
Kveðja Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.5.2007 | 11:45
Gott kosningakvöld hjá mér :)
Já, kosningakvöldið var skemmtilegt hjá mér. Við öll sem erum í hverfafélögum Sjálfstæðismanna í Breiðholti vorum saman að vinna yfir daginn, hringdum í fólk, grilluðum pylsur, bökuðum vöfflur og spjölluðum við fólk Mjög skemmtileg stemmning og fólk var ánægt með daginn.
Þegar líða tók á kvöldið var ég reyndar oðrið alveg sárkvalin af söknuði til sonar míns, hans Sæþórs Helga, ég var ekki búin að hitta hann mikið síðustu dagana . Hugsaði mikið til hans og var alveg að deyja mig langaði svo að hitta hann
.... svo ég ákvað þá að rjúka til mömmu í einum grænum hvelli og horfa á fyrstu tölurnar með syni mínum og mömmu
Sjórnin mín fær reyndar að hitta mig í næstu viku og ég þau, en þarna var draumastaðan mín sú að vera með honum litla mínum.
Við áttum mjög skemmtilegt kvöld, hann sem fær nú ekki mikið að ruslfæði fekk loksins bæði laugardagsnammi, malt í dós og pizzu. Við fórum í Bónusvídeo í Mjódd og svo á Hróa Hött og svo beint heim að hafa kósý . það var mjög gaman hjá okkur og sá litli skemmti sér mjög vel. Hann vakti aðeins of lengi þetta kvöldið, en það var bara allt í lagi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2007 | 14:45
Bíða og bíða og bíða :)
Jæja Hann Geir heldur okkur öllum í spennu með hvað hann ætlar sér að gera
. Það er einmitt svo fyndið að hann er sá eini sem getur tekið fyrsta skrefið, þjóðin heldur niðri í sér andanum af spennu og hann er svo rólegur yfir þessu að það hálfa væri nóg
....alveg dæmigert.
Það er aðeins kominn mánudagur og mér líður eins og við séum búin að bíða í heila viku
En ég er spennt að sjá hvað hann gerir, ég mundi ekki þola ef að sama stjórnin ætti að halda áfram, mér finnst þurfa ákveðnar breytingar og væri fínt að fá græningjana eða Samfylkinguna með þeim frekar en Framsókn. Þá mundi ég vilja að sá flokkur sem kæmi inn fengi félagsmálaráðuneytið eða heilbrigðisráðuneytið, annað hvort og svo ætti sá hinn sami flokkur að fá menntamálaráðuneytið líka.
Hvað segið þið hin ?
Kveðja Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.5.2007 | 01:05
Lýsi yfir skömm á þá Sjálfstæðismenn....
....sem strikuðu yfir Björn á lista sínum, hvað er að ykkur ? hvað gerði það að verkum að þið hegðið ykkur eins og þið gerðuð á kjördegi ? að stroka út mann eins og Björn
Skömm á ykkur,
Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
13.5.2007 | 00:45
Þeir flokkar sem ég vil fá saman.....
.......eru Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin og vona ég svo innilega að þessir tveir flokkar nái saman. Ég hef margoft sagt þetta við mína nánustu, en ekki hér inni
Ég stend alveg á því að mínir menn í XD verði að fá að taka þátt í að mynda ríkisstjórn, enda er hann með langstærsta fylgið og væri að mínu mati til skammar að halda honum í burtu úr ríkisstjórn. Ég tel mína menn vera skynsama og góða stjórnendur og ég TREYSTI ÞEIM !!!!
Þessir tveir flokkar eru ekki búnir að vera með miklar öfgar í viðtölum eins og leiðtogar hinna flokkanna. Ég er mikið sáttari við Samfylkinguna en ég hef verið áður og væri mjög glöð að fá þá með okkur í stjórn Má þá benda á flotta einstaklinga eins og Ágúst Ólaf (sem ég hef svo oft nefnt hér áður), Jóhönnu Sigurðardóttur, Katrínu Júlíusdóttur og fleiri.
Vinstri græna vil ég ekki því að mér finnst þeir öfgafullir og þeir heilla mig afskaplega lítið...... og þó þeir hafa nú stundum gert það, en ég sjálf kysi að fá Samfylkinguna.
Reyndar hef ég nú mikið álit á Frjálslyndaflokknum, en þeir eru með afskaplega lítið fylgi og nægir ekki til að mynda saman með XD. Æi mér finnst samt eitthvað svo leiðinlegt að skilja hann útundan
Æi, nenni ekki meira núna í kvöld...... en plíííííís, Geir og Ingibjörg, verið roooooosalega góðir vinnir í kvöld og (ekki í nótt ) í fyrramálið og náið saman að mynda stjórn..... elsku dúllurnar mínar
Njótið þið hin öll kvöldsins
Inga Lára Helgadóttir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.5.2007 | 23:04
Kæru vinir í Sjálfstæðisflokknum,
Núna er að bretta upp ermarnar á endasprettinum okkar og nú er kosningabaráttunni að ljúka
Mig langar að segja að ég er búin að eyða síðustu dögum með dásamlegu fólki, semsagt að vinna með stjórninni minni í Breiðholtinu og það er búið að vera mjög gaman.
Mig langar að óska okkur öllum góðs gengis og svo mætum við öll galvösk til leiks á morgun.
Hlakka mikið til að hitta ykkur vini mína
Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.5.2007 | 13:21
Varðandi námsmenn í dag,
Varðandi námsmenn núna í dag, þá langar mig að koma hér með nokkur orð
Fyrir fjórum árum síðan, þegar Sjáflstæðisflokkur fekk að halda velli, þá var meiri refsing fyrir námsmenn að vinna með námi og að vera í sumarvinnu. Núna er staðan betri og að sögn starfsmanns sem ég ræddi við hjá Lánasjóði Íslenskra Námsmamma, þá er refsingin minni í dag þegar nemendur afla sér inn vinnutekjur.
Ef ég tek dæmi, um að nemandi sé með um 500.000 krónur á ári, þá var hér fyrir fjórum árum síðan 280.000 króna frítekjumark, en 40% umfram frítekjumarksins var tekið af okkur. Sá sem var með 500.000 krónur var semsagt skertur um 88.000 krónur það árið.
Í dag ef nemandi er með 500.000 krónur, þá er hann Geir okkar að lækka skerðinguna úr 12% niður í 10%, svo að sá sem fær fyrirgreindar árstekjur með námi er nú skertur um 50.000 krónur, eða heilum 38.000 krónum minna en áður var. Einnig er búist við hækkun á námslánum svo að kemur okkur enn betur.
Mér er spurt, eru þetta ekki framfarir fyrir námsmenn ?
Einnig langar mig að benda á þau fríðindi sem námsmenn fá í dag, svosem hækkun á barnabótum og svo fáum við auðvitað vaxtabæturnar í ágúst við sem eigum okkur íbúð. Þeir sem eru ekki í eigin húsnæði fá einnig hærri húsaleigubætur en vinnandi maður, þar sem tekjur hans eru eflaust hærri en okkar. Leikskólagjöldin eru ódýrari til muna fyrir þá sem eru með börn til að mæta þeim nemendum sem eru að sjá fyrir börnum sínum.
Með nemendur á framhaldsskólastigi, þá fá þeir aðstoð með að halda áfram námi ef þeir eru illa á vegi staddir fjárhagslega og hafa margir hverjir fengið námsstyrk frá félagsþjónustunni til að hefja framhaldsskólanám.
Margir hverjir geta ekki treyst á aðstoð frá foreldrum eða ættingjum meðan þeir eru í námi, en samt geta þeir haldið áfram. Ég veit jú um einstaklinga sem geta ekki farið í nám því að þeir eru með svo miklar skuldbindingar því að þeir eiga orðið allt...... er það ekki þeirra mál ? svona hreint út sagt
Fyrir mér hefur þróunin verið jákvæð og mér fannst jákvætt þegar ég ræddi við Geir Hilmar Haarde í vikunni sem sagði að skerðingarmörkin færu stöðugt lækkandi og myndu gera það áfram
Auðvitað er erfitt að draga fram lífið sem námsmaður, en er ekki allt í lagi að hafa stundum aðeins fyrir þessu ? er það ekki þess virði ? Mér finnst það enda hef ég haldið áfram námi
Bestu kveðjur og þakkir fyrir að lesa,
Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.5.2007 | 20:08
Nýjir tímar á traustum grunni......
..... er slagorð Sjálfstæðisflokksins í kosningabaráttunni núna í þingkosningunum.
Hér á landi er atvinnuleysi lítið og með því minnsta sem vitað er um í heiminum. Skuldir ríkissjóðs hafa verið greiddir upp og skattar lækka stöðugt. Hagvöxtur hefur aukist mikið með árunum.
Margir hafa gagnýrt þessar fullyrðingar mikið, þá auðvitað þeir sem sýna stjórnarandstöðunni stuðning sinn. En af hverju má ekki viðurkenna og hrósa fyrir það sem hefur verið vel gert ? Getur einhver komið frá þeim sem eru á móti þessari ríkisstjórn og nefnt eitthvað sem þeir sjái að hafi verið gert jákvætt ?
Lítið og oft sem ekkert atvinnuleysi, er það eitthvað til að kvarta yfir ? og eins lágir skattar ? sem hafa eins verið lækkaðir um helming til atvinnurekenda ?
Mikið hefur verið rætt um eldri borgara, eins öryrkja og fleiri hópa samfélagsins sem því miður hafa það oft ekki nógu gott. En samkvæmt rannsóknum sem hafa verið unnar á eldri borgurum, þá kom í ljós að hlutfall eldri borgara sem hefur ekki nógu gott fer lækkandi og færri einstaklingar úr þeim hópi hafa áhyggjur af fjármálum sínum.
EN !!! þeir sem hafa ekki nógu gott, þá þarf að finna og aðstoða þá. Mér finnst ekki rétt að talað sé um málefni eldri borgara eins og allir hafi það svo slæmt og sem betur fer, þá er stór hópur sem hefur það nokkuð gott. Semsagt fleiri hafa það betra núna en áður og sá hópur sem hefur það gott fer STÆKKANDI, er það dæmi um mistök ? EN enn og aftur, þá þarf að bregðast hraustlegra við þeim hópi sem hefur of lítinn pening á milli handanna og að mínu mati hafa aðeins verið tekin hænuskref í þeirra málum og mætti gera þar svo miklu miklu betur og vil ég fá að sjá það gert NÚNA og EKKI seinna. Mér leiðist einstaklega þegar staðan er afsökuð, þvi að það er óásættanlegt að fólk búi við slæm kjör. EKki seinna en í gær skal þessi staða lagast.
Kveðja Inga Lára
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Um bloggið
Inga Lára Helgadóttir
Bloggvinir
-
lehamzdr
-
gislihjalmar
-
svenni
-
sigurdurkari
-
kolbrunb
-
madamhex
-
otti
-
helgahaarde
-
agustolafur
-
doggpals
-
astamoller
-
jonmagnusson
-
harhar33
-
prakkarinn
-
maggib
-
gummisteingrims
-
sveinnhj
-
kiddip
-
borgar
-
juliusvalsson
-
hrafnathing
-
bryndisisfold
-
truno
-
vakafls
-
mariaannakristjansdottir
-
grazyna
-
bjorkv
-
laugardalur
-
stefaniasig
-
kosningar
-
kiddirokk
-
skarfur
-
gesturgudjonsson
-
lara
-
birgir
-
nielsen
-
hreinsi
-
gudfinna
-
fanney
-
magnusthor
-
haukurn
-
sigmarg
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
olavia
-
birkire
-
obv
-
malacai
-
almaogfreyja
-
sabroe
-
audbergur
-
reykur
-
asgerdurjoh
-
bogl
-
bjarnihardar
-
bjartmarinn
-
bjornf
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
saxi
-
ellasprella
-
ellasiggag
-
ea
-
fsfi
-
gtg
-
eddabjo
-
gudbjorggreta
-
vglilja
-
gudrunmagnea
-
gunz
-
coke
-
hannesgi
-
heimirh
-
hlf
-
blekpenni
-
drum
-
hvitiriddarinn
-
hogni
-
ibb
-
snjokall
-
nonniblogg
-
jobbisig
-
kristbjorg
-
hjolaferd
-
krizziuz
-
meistarinn
-
mullis
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
perlaoghvolparnir
-
siggiulfars
-
pandora
-
sterlends
-
saethorhelgi
-
tara
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
- visindi
-
tolliagustar
-
steinibriem
-
nupur
-
torduringi
-
thorirniels
-
oddikennari
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar