Færsluflokkur: Bloggar
30.8.2007 | 00:19
Skólinn að byrja aftur eftir nokkra daga :)
Núna er sumarið á enda (eins og örugglega flest ykkar vita) og skólinn er að byrja hjá mér í næstu viku
Mér finnst sumarið alveg hafa flogið áfram og ég hef ekki alveg gert allt sem ég ætlaði mér að gera en er samt búin að gera helling sem ég ætlaði ekki að gera, svona eins og að fara til Spánar og svona... en alltaf er jafn gaman að takast á við ný verkefni á nýrri önn í skólanum og strax er ég farin að hlakka til dæmis til næstu jóla og undirbúninginn fyrir þau .
Ég er svo mikið jólabarn, og það sem meira er er það að þegar skólinn byrjar á haustin, þá er svo stutt í að jólaundirbúningur hefst, því að tíminn er svo fljótur að líða.
Þegar ég er í skólanum þá er svo oft sem mér dettur eitthvað sniðugt í hug að blogga um, því að þar sem ég er félagsráðgjafanemi, þá er ég svo oft að huga að mörgu sem er að gerast í okkar samfélagi. Þá kemur oft þessi blögg þörf hjá mér , svo er það ykkar að segja hvort sem þið eruð ósammála því eða ekki, eins og þið hafið mörg gjarnan gert hér áður.
Bestu kveðjur í bili,
Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.8.2007 | 22:16
Hel..... fín Verslunarmannahelgi hjá mér :D
Já helgin var æðisleg hjá mér og mínum. Ég, maður minn og sonur fórum saman í Þjórsárdal og var það alveg rosalega gaman. Ég ætlaði mér fyrir svolitlu síðan að taka að mér aukavinnu um helgina þar sem spáin var heint út sagt alveg ömuleg, en það rættist svo sannarlega úr veðrinu og höfðum við alveg rosalega gott, tókum góðan lit í sólinni og pollagallinn var ekki tekinn upp einu sinni á strákinn
Með okkur í ferðinni voru mamma mín og svo næstum öll tengdafjölskylda mín. Þessi sami hópur fór í bústað saman tveimur vikum áður og skemmti sér mjög vel saman. Svo tengdafjölskyldurnar tvær hafa náð mjög góðu samkomulagi og höfum við kallinn minn verið oft öfunduð af því
Sonurinn alveg að klikkast úr frekju eftir sumarfríið, þar sem við máðum í burtu ýmsar línur sem við ætluðum sko ekki að fara yfir, en okkur þótti nú í lagi að dekra aðeins við krakkarassgatið og hafa aðeins frjálslegra þessar fjórar vikur sem hann er í sumarfríi
Jæja, hvað gerðuð þið um helgina ágæta fólk ?
Kveðja Inga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.6.2007 | 00:29
Hverjir gáfu blóð í dag ?
Alþjóða bljóðgjafadagurinn var í dag. Bara svona að forvitnast hvort að einhver hér hafi lagt inn
Ég gerði það reyndar ekki, er voða lítil og kjarklaus þegar kemur að nálum, svo að þarna er ekki um mína sterkustu hlið að ræða
En það voru milli níu og tíuþúsund sem gáfu blóð í dag, enda veitir ekki af, þar sem blóðbankinn er gjarnan blankasti banki landssins en ætti að vera einn sá ríkasti.
Ég ætla nú að fara og laga þessa skrattans fóbíu mína og mæta á næsta ári
Tökum höndum saman kæru landar og fyllum bankann
Kveðja Inga Lára Helgadóttir
![]() |
Blóðið flæðir í Blóðbankanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.6.2007 | 11:02
Ok, sko......
Núna er mikið búið að tala um biðlista eftir heilbrigðisþjónustu og að heilbrigðiskerfið standi ekki undir væntingum fólks. Þá er ég að tala um vegna manneklu, skorts á plássi fyrir inniliggjandi sjúklinga innan spítalans og fl.
Ef verið er að gera áætlanir í dag til að mæta þörfinni eins og hún er í dag, þá verður skorturinn eins mikill á næsta ári og hann er núna í ár og búinn að vera öll síðustu árin
Oh, kveðja,
Inga Lára Helgadóttir
![]() |
Skjólstæðingum LSH hefur fjölgað um 3% á árinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.6.2007 | 19:32
Magnað :)
Ég hef svo oft, eins og væntanlega næstum allir aðrir, hugsað út í það hve oft fólk talar hér um veðrið ef það hefur ekkert merkilegt að segja. Núna síðast í dag hitti ég eina mjög ágæta nágrannakonu mína þegar ég kom inn á minn stigagang og við vorum samferða upp í lyftunni og við búum á sömu hæð. Alla leiðina upp þá töluðum við um veðrið, við gerðum það í gær líka .... svolítið skondið
Hvað er þetta í okkur sem gerir það aða verkum að veðrið verður einhver flóttaleið út úr þögulli samferðaleið inn í hús og nokkrar hæðir í lyftu ? Þetta á auðvitað ekki bara við um mig og þessa nágrannakonu, þetta er bara svo algengt ?
Kveðja,
Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.5.2007 | 08:49
Síðustu forvöð....
....fyrir reykingarfólk á kaffihúsum
Ég reyki reyndar ekki sjálf, en ég veit ekki,...... kannski er þetta ekki svo sniðug hugmynd. Mér þætti sniðugra að hafa einhver sér herbergi svo að fólk gæti reykt, og ég er ansi hrædd um eins og veitingarhúsareigandinn í meðfylgjandi frétt hafi rétt fyrir sér. Að aðsókn á kaffihús og þar með sala þeirra minnki og segja þurfi upp starfsfólki það er eins gott að það gerist ekki, annars ættu stjórnvöld að greiða veitingarhúsaeigendum skaðabætur..... kannski segi ég það bara núna svona þegar þetta er allt að byrja
En núna finnst mér þetta virka voða ósanngjarnt og veit í raun ekki hverjar afleiðingarnar verða. Þær vinkonur mínar sem reykja hafa ekki viljað fara á reyklausa staði. Hvernig ætli þetta eigi eftir að fara ? voru þetta mistök eða ekki ?
Endilega segið mér hvað þið eruð að hugsa
Inga Lára Helgadóttir
![]() |
Reykingabann á skemmtistöðum gæti skilið milli feigs og ófeigs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
28.5.2007 | 14:43
Ein stór hugleiðing hjá mér....
....í kjölfarið af fréttinni. En með því að hafa lögregluhund með lögreglumönnum, þá finndist mér líklegra að betur væri komið fram við lögreglur. Væri ekki snilld að gera allt til að bæta ímynd lögregluþjóna og gera allt til að þeim sé sýnd mikil virðing ?
Margir eru ósammála því og segja þá í mörgum tilfellum vera vanhæfir og jafnvel dónalegir, en hvernig koma margir hverjir fram við þá ? hvernig ætli sé að vera í mjög erfiðu og vanmetnu starfi eins og lögreglan ?
Ég er ekki að segja að allir vanmeti störf þeirra, langt því frá, en það þarf að efla virðinguna við þá.
Kveðja Inga Lára
![]() |
Hundar aðstoða við eftirlit í verslanamiðstöðvum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.5.2007 | 17:46
Takk fyrir það
Loksins eru fyrirtæki farin að líta að geðsviðinu líka á LSH, en þar skortir fjármagn og þar eru unnin afar góð störf. Ég er sjálf að starfa á deild 33A, semsagt fíkni- og fjölkvillageðdeild og sé ég eftir að ég hóf störf þar að fjármagn skortir verulega, þá bæði mætti greiða hærri laun, koma með fleiri úrræði og annað.
Hvað ætli nýji heilbrigðisráðherrann væri tilbúinn að fá í laun fyrir að vinna það starf sem ég er að vinna ? Það væri gaman að vita
Með þessum orðum mínum er ég ekki að gera lítið úr því fé sem aðrar deildir fá, því að allt það fé sem deildir LSH fá er mikilvægt fé.
Hvað ætlar nýji heilbrigðisráðherrann að gera til að bregðast við brýnni fjármagnsþörf spítalans ?
Bestu kveðjur til ykkar lesenda
Inga Lára Helgadóttir
![]() |
Actavis færði geðsviði LSH styrk að verðmæti ein milljón kr. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.5.2007 | 19:09
Jibbbbbbbý :)
Núna er loksins búið að mynda stjórn milli Sjálfstæðismanna og Samfylkingarinnar. Svo væntanlega seinna í kvöld fáum við að vita um ráðherraskipan
Liggur við að þetta sé of gott til að vera satt, en þar sem ég er ekki masokisti ætla ég ekki að klípa mig sundur og saman til að athuga hvort ég sé vakandi
Jæja, hvernig viljið þið sjá ráðherrasætin skipuð ?
Kveðja Inga Lára.
![]() |
Sjálfstæðismönnum og Samfylkingu kynntur stjórnarsamningurinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.5.2007 | 11:41
Ber enginn ábyrgðina ???
Mér verður hugsað til þess þegar ég sé núna í fjórða sinn á stuttum tíma, bruna í móanum á milli Bakkahverfis og Vesturbergs í hverfinu mínu Breiðholti, hvort einginn eigi að bera ábyrgð á því sem gert er ?
Ég man eftir því þegar ég bjó nær miðbænum, þá var gjarnan veggjkrot og fleira í gangi. Hér er mói og því tilvalið að kveikja í
Nú segja lögin til um að börn undir fimmtán ára aldri séu ósakhæf og er ekkert hægt að refsa þeim fyrir að gera rangt. Nema í raun að þurfi að fjarlægja þau af heimili sínu ef foreldrar eru ekki í ástandi til að ala upp börn.
En er ekki í lagi að lofa foreldrum að bera ábyrgð á börnum sínum, að lofa þeim að greiða hluta þeirra kostnaðar sem skemmdarverkin hafa í för með sér ? Að gera foreldra ábyrga og lofa þeim að hugsa um að þeir þurfi virkilega að siða og aga börnin sín til ? ....eða á ríkið bara alltaf að borga brúsann ?
Mér finnst sjálfri í lagi að koma upp sektum við íkveikjum, veggjakroti og fleiru og væri það þá verk foreldra ósakhæfðra barna sem mættu greiða þá fyrir skemmdarverk barna sinna. Væri ekki í lagi að sjá hvort eitthvað mundi lagast ?
Ég vil um leið taka það fram að ég þekki helling af börnum og unglingum og flestir úr þeim hópum alveg prýðiseinstaklingar, en svo er inn á milli einstaklingar sem þyrfti aðeins að grípa í taumana á og er þetta hugmynd mín til þess. Annað... þá vil ég taka það fram að leiðinleg og neikvæð umræða um unglinga getur skapast út frá svona verknaði og er það leiðinlegt þar sem manneskjur í þessum aldurshópi eru jafn mismunandi eins og fólk á öllum öðrum aldri.
Bestu kveðjur,
Inga Lára Helgadóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Inga Lára Helgadóttir
Bloggvinir
-
lehamzdr
-
gislihjalmar
-
svenni
-
sigurdurkari
-
kolbrunb
-
madamhex
-
otti
-
helgahaarde
-
agustolafur
-
doggpals
-
astamoller
-
jonmagnusson
-
harhar33
-
prakkarinn
-
maggib
-
gummisteingrims
-
sveinnhj
-
kiddip
-
borgar
-
juliusvalsson
-
hrafnathing
-
bryndisisfold
-
truno
-
vakafls
-
mariaannakristjansdottir
-
grazyna
-
bjorkv
-
laugardalur
-
stefaniasig
-
kosningar
-
kiddirokk
-
skarfur
-
gesturgudjonsson
-
lara
-
birgir
-
nielsen
-
hreinsi
-
gudfinna
-
fanney
-
magnusthor
-
haukurn
-
sigmarg
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
olavia
-
birkire
-
obv
-
malacai
-
almaogfreyja
-
sabroe
-
audbergur
-
reykur
-
asgerdurjoh
-
bogl
-
bjarnihardar
-
bjartmarinn
-
bjornf
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
saxi
-
ellasprella
-
ellasiggag
-
ea
-
fsfi
-
gtg
-
eddabjo
-
gudbjorggreta
-
vglilja
-
gudrunmagnea
-
gunz
-
coke
-
hannesgi
-
heimirh
-
hlf
-
blekpenni
-
drum
-
hvitiriddarinn
-
hogni
-
ibb
-
snjokall
-
nonniblogg
-
jobbisig
-
kristbjorg
-
hjolaferd
-
krizziuz
-
meistarinn
-
mullis
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
perlaoghvolparnir
-
siggiulfars
-
pandora
-
sterlends
-
saethorhelgi
-
tara
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
- visindi
-
tolliagustar
-
steinibriem
-
nupur
-
torduringi
-
thorirniels
-
oddikennari
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar