Var búin að reka augun í það...

.....hve rosalega margir eru ljóslausir. Alveg hrikalegt eins og þegar ég var að keyra í gær á leið frá móður minni og var komið mikið myrkur og ég sá ekki einn bílinn sem var að koma á móti mér, en sá bíll var dökkur að lit og var einnig ljóslaus.

Ég hef oft á tíðum blikkað þá sem eru að keyra um ljóslausir, en þeir hafa sjaldnast kveikt ljósin hjá sér þó að þeim hafi verið bent á með blikki.

Bestu kveðjur til ykkar allra,

Inga Lára Helgadóttir 


mbl.is Of margir með ljósin í ólagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Það er alltof mikið um að bílar eru ljós lausir.  Ég skoða ljósin á bilunum mínum reglulega til að hafa þau í lagi.  Hér á Hólum er ekki nein götulýsing svo það er nauðsýnlegt að vera með góð ljós.  Nú er ég að fara prófa perur í bílinn minn sem eiga að lýsa meira en þessar perur sem eru oftast í bílum. Góð ljós er nauðsýn.

kv

Þórður Ingi

Þórður Ingi Bjarnason, 30.10.2007 kl. 20:15

2 identicon

Sammála þessu með ljósin. Til viðbótar þyrftu ökumenn að taka sig verulega á í notkun stefnuljósa, hvort heldur sem er á gatnamótum, hringtorgum eða þegar skipt er á milli akreina. Þetta einfalda handtak virðist vefjast fyrir fullt af fólki og spurningin er þá hvort það sé hreinlega ekki of mikið mál fyrir þá sömu að keyra bíl yfirleitt ;-)

Þá eru þeir verulega til óþæginda sem aka hægt á vinstri akrein tvöfaldra vega. Það er eins og sumir hafi alls ekki verið að hlusta þegar ökukennarinn benti á að hægri akreinin væri fyrir hægari akstur. Það hefur svo sem oft verið minnst á konuna í Hafnarfirði sem þarf að beygja til vinstri á Sæbraut og er því á vinstri vegarhelmingi alla leið úr Firðinum.......

Birkir (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 23:02

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Orð i tíma töluð Inga Lára/við eigum að taka okkur öll á og láta ljósin vera rétt stylt og nota þau rétt/um það snýst málið/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 31.10.2007 kl. 06:51

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og sex?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Inga Lára Helgadóttir

Höfundur

Inga Lára Helgadóttir
Inga Lára Helgadóttir

Mér datt í hug að opna blogg, bara til að vera eins og Steingrímur stóri bróðir minn

Er nemi í Háskóla Íslands í félagsráðgjöf, húsmóðir með barn og mann og svo er ég í 40% starfi á Geðsviði LSH, á deild 33A

Ég hef gaman af blogginu og kem hér inn með mínar skoðanir og fleira sem mér dettur í hug að ræða. En vil endilega fá speglun á þær og viðhorf annarra.  Mínar eru ekki alltaf réttar og þá er gott að fá sjónarmið annarra ..... 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ar_2008_002
  • Sófi til sölu
  • Hann er ekki alveg að sofna.
  • Vignir Bergmann tengdapabbi
  • Þrír saman

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 1650

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband