Jæja, þá er minn drengur spilltur ;)

Ég var einmitt að ræða það hér um daginn hvað börnin ætlast orðið til að fá mikið í skóinn Wink

Sonur minn litli vaknaði í morgun og sá að sveinki hefði sett epli, nælu og pening í baukinn.... viðbrögðin voru þvílík að ég bara missti andlitið LoL barnið varð svo fúlt að ég vissi varla hvað ég átti að gera. Ekki annað en það að ég kalla á drenginn inn í herbergi til okkar pabba hans og þá hafði sveinki komið þangað líka, sennilega því að hann svaf hálfa nóttina hjá okkur Grin

Sjáið ! að sonur minn þurfti að fá miskabætur frá sveinka þar sem vonbrigðin urðu svo mikil, en það er nú ekki eins og hann hafi fengið einhverjar rosalegar gjafir hingað til InLove

Jæja, vildi bara deila þessu með ykkur, þetta var svona frekar fyndið.

Kveðja......og búin í prófum,

Inga Lára Helgadóttir 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Börnin hafa skoðun á því hvað jólasveininn gefur í skóginn. 

kv

Þórður Ingi

Þórður Ingi Bjarnason, 20.12.2007 kl. 17:29

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég fer alvarlega að íhuga að taka af þér frænda minn...

Ég á nefnilega almennilegann vélsleða ...

Steingrímur Helgason, 21.12.2007 kl. 00:48

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Kvitt /þetta goð og gegn saga/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 21.12.2007 kl. 00:59

4 Smámynd: Ásgerður

Bíddu þangað til hann verður eldri og vill fá tölvuleiki í skóinn

En svona í alvöru, þá held ég að þetta sé líka umhverfið, það er verið að tala saman í skólanum / leikskólanum, og sum börn fá sömu gjafir í skóinn og önnur fá sem aðalgjöf frá mömmu og pabba, og þá er alveg eðlilegt að þau verði sár.

Minn er 11 ára, og veit að það er ég sem set í skóinn, en af því að "allir" í bekknum fá í skóinn, þá sömdum við um að þetta yrðu síðustu jólin sem skórinn fer út í glugga.  Nú er hann orðinn það stór, að það er ekkert auðvelt að finna eitthvað fyrir lítinn pening sem honum finnst eitthvað varið í . Það var aftur á móti mun  auðveldara þegar hann var yngri.

En þau eru svo miklar dúllur þessar elskur, og spennan fyrir því hvað kemur í skóinn virðist ekkert eldast af þeim, þannig að þessi jól, verður áfram sett í skóinn á mínu heimili

Ásgerður , 21.12.2007 kl. 06:52

5 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Það er mjög auðvelt að spilla frumburðinum, mjög auðvelt - enn það er gaman að spilla barnabörnunum.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 21.12.2007 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og tuttugu?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Inga Lára Helgadóttir

Höfundur

Inga Lára Helgadóttir
Inga Lára Helgadóttir

Mér datt í hug að opna blogg, bara til að vera eins og Steingrímur stóri bróðir minn

Er nemi í Háskóla Íslands í félagsráðgjöf, húsmóðir með barn og mann og svo er ég í 40% starfi á Geðsviði LSH, á deild 33A

Ég hef gaman af blogginu og kem hér inn með mínar skoðanir og fleira sem mér dettur í hug að ræða. En vil endilega fá speglun á þær og viðhorf annarra.  Mínar eru ekki alltaf réttar og þá er gott að fá sjónarmið annarra ..... 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ar_2008_002
  • Sófi til sölu
  • Hann er ekki alveg að sofna.
  • Vignir Bergmann tengdapabbi
  • Þrír saman

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 1708

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband