Færsluflokkur: Bloggar

Lít alltaf eftir ljósinu :)

Ég var nú ein af þeim sem sá enga ástæðu fyrir þessari blessuðu friðarsúlu hennar Yoko í Viðey, mér fannst þetta hreint út sagt hallærislegt og botnaði ekkert í því að vera að koma með þetta hingað en........

...ég er allavega ein af þeim sem lít alltaf að ljósinu og athuga hvort að það sé sjáanlegt og í fyrsta skipti sem ég sá það, þá fannst mér það eitthvað svo táknrænt og fallegt við það,.... alveg ótrúlegt Halo svo að í dag þykir mér voða merkilegt að við höfum fengið að hafa þessa súlu hér hjá okkur og mér finnst við eiga að hugsa eitthvað gott þegar við sjáum hana.

Bestu kveðjur frá mér til ykkar,

Inga Lára HelgadóttirSmile


Sjaldan verið jafn rosalega kvíðin :-/

Jamm... þannig er nú mál með vexti að ég er að fara í próf á morgun og er að deyja úr stressi..... prófið er reyndar krossapróf og er úr Aðferðarfræði II, sem eru rannsóknaraðferðir sem notaðar eru í félagsvísindum og víða í vísindaheiminum Halo

Alveg ótrúlegt.... við megum hafa með okkur öll gögn og allt sem við höfum gert, en það er held ég það sem veldur kvíðanum í mér, ég er svo hrædd um að prófið verði mjög svínslegt og snúið fyrir vikið Crying

Vildi bara deila því með einhverjum, sonur minn er þriggja ára og hefur ekki vit á því sem ég er að gera núna, maðurinn minn er sjálfur upp fyrir haus í lærdómi og ég alveg að flippa út Sick.... svo að þið kæru lesendur eruð fórnarlömb stessins í mér þessa stundina, en ég vona að það hafi ekki komið af mikilli sök.

Jæja, mér er ekki til setunnar boðið við að hanga hér inni, heldur lesa og lesa og lesa fram að hádegi á morgun.... eða reyndar að reikna og reikna og lesa líka Grin

Kveðja,

Inga Lára HelgadóttirInLove


Af hverju ekki að láta þjóðina kjósa ?

Ég horfði í dag á umræður á þingi varðandi að leyfa sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum. Eins og ég hef áður tekið hér fram á bloggi mínu þá er ég mikið á móti þessari tillögu.

Ótrúlegt samt hvað við drögum ályktanir af því sem fólk segir eftir okkar eigin skoðunum. Ég horfði á Kastljós rétt áðan og þar var prófessor að gera grein fyrir þróun áfengismála annarsstaðar í heiminum og hvaða afleiðingar aukið aðgengi að áfengi hefði í för með sér. Hann sagði að ef aukið yrði aðgengi að áfengi, þá mundi áfengisneysla aukast sem mundi hafa aukin vandamál í för með sér.

Mér er spurt, þar sem ég fer ekki einu sinni út í búð á hverjum degi eftir  mjólk, skyr, brauði, kjöti og öðru, af hverju geta einstaklingar ekki farið einstaka sinnum í ÁTVR og keypt kannski eina kvíta og eina rauða og tvær eða þrjár kippur að bjór til að eiga ? Er eitthvað vandamál að kaupa þetta í sér verslun og eiga það til og opna þegar tækifæri gefst ?
Mér finnst á þeim þingmönnum sem berjast svona fyrir þessu að þeir  séu hreinlega í einhverri áfengiskreppu. Hvað er að málunum eins og þau eru í dag ? Liggur alveg lífið við að geta keypt vín um leið og nautasteikin er valin ? .........mér finnst þetta svo aumt baráttumál að ég á ekki til orð.

Við tölum um áhyggjur okkar af áfengis- og vímuefnaneyslu, en ég vil minna þá á sem eru svona hlyntir þessu, að þeir eru ekki að mínu mati og annarra, eins og prófessorsins í sjónvarpinu áðan, að stuðla að betri andlegri heilsu hjá fólki í landinum Að auki hefur áfengisneysla slæm áhrif á félagslegu hliðina líka.

En ég hef móðgaði þig lesandi góður með þessum skrifum hér að ofan, þá vil ég koma því á framfæri að kannski eru ekki allir eins og þú að geta farið vel með áfengi. Það eru einfaldlega ekki allir eins og þú..........

Bestu kveðjur til ykkar,

Inga Lára Helgadóttir 


Sala á léttvíni og bjór...

Ég verð að segja að mér finndist þessi þróun ömuleg ef að ætti að fara að selja vín og bjór í verslunum. Þá er ég ekki að hugsa að það kæmi sér illa fyrir alkóhólista og aðra slíka eins og sumir vilja meina.

Ég hef ekki góða tilfinningu fyrir því þegar börn fara með foreldrum sínum að versla að þau horfi þar á vín sem heilbrigðan og eðlilegan hlut. Svo hefur það nú alltaf þekkst að krakkar og unglingar steli úr verslunum, svo að ég er ansi hrædd um að þau yrðu frekar upptekin eða með hugan við áfengið sem væri þar í hillunum.

Á hinn bóginn !!! hef ég hugsað mér að kannski mundi þessi lög gera það að verkum að viðhorf barna og unglinga yrði öðruvísi gagnvart áfengi..... eða ég veit ekki Errm ég hef verið að horfa í kosti og galla og ég finn ekki marga kosti við þetta. 

Hvað segið þið hin ? Það væri gaman ef Sigurður Kári kæmi með komment Wink ég kommenta hann alltaf þar sem mér finnst hann hafa mart gott og rétt að segja, en ég hef aldrei fengið nein komment frá honum...

Kveðja Inga Lára Helgadóttir 


mbl.is Á að gefa bjór- og léttvínssölu frjálsa?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg nauðsynlegt :)

Já, ég var ekkert smá lánsöm í gær. Maðurinn minn ákvað að fara á októberfest hjá Háskóla Íslands og sonur minn vildi fá að lúlla hjá langömmu sinni, svo að ég var bara alein heima að gera ekki neitt og meira að segja ákvað að horfa á mynd sem ég var ekki einu sinni sérstaklega spennt fyrir.....

Það er sko alveg nauðsynlegt fyrir mæður að fá að losna við alla út af heimilinu svona einu sinni og einu sinni Grin varð bara að deila því með ykkur hér, að það er alveg fáránlega þæginlegt að upplifa allt í einu að þurfa ekkert að gera, ekki að hlusta á neinn og...... já, bara að vera þarna fyrir sjálfa mig Wink

Mæður ! hendið kallinum út svona annað slagið og sendið barnið í pössun Tounge

Gleðikveðja,

Inga Lára Helgadóttir 


Úr Kastljósinu í kvöld

Standa vörð um auðlindir í eigu almennings ????? hvað þýðir þetta ? er Dagur virkilega að segja að þetta segi eitthvað ? Mér þykir þetta nú ekki mjög treystandi Frown

Mér finnst alveg ótrúlegt af honum að leggja þetta fram, því að allir flokkar eru jú oft að stefna að því sama, semagt "almannaheill", en hvernig túlkar hver og einn slíka hugsun ? hvað býr að baki þess að standa vörð um auðlindir í eigu almennings ? Hvað felur þetta í sér fyrir hvern og einn, þetta snýst allt um túlkun, viðhorf og mismunandi markmið og leiðir, þetta er alveg fáranlegt.... aumingja Villi og co.

Mér þótti Svandís óttalega kjánaleg að geta ekki svarað einföldum spurningum hvort að hægt væri að ná saman um þau mál sem við öll höfum fengið nóg af þessa daganna. "Við erum sammála um að fara í þessa vinnu og þurfi að ræða þessi mál" hvað er manneskjan eiginlega að segja, þau geta jú verið sammála um að eitthvað þurfi að ræða, en ég meina þau geta alveg verið á sitthvorum vængnum. Hún getur ekkert sagt til um það hvað hún vill eða vill ekki, þetta finnst mér ekki traustvekjandi. Orkuveitumálin eru alveg í lausu lofti núna. Mér finnst staðan sem núverandi meirihluti er búin að koma sér í vera mjög vandræðaleg, ég vona hinsvegar að þau eigi ekki eftir að rústa þessu algerlega hjá okkur, en ég vona svo innilega að árið 2010 þegar borgarstjórnarkosningar verða næst, þá verði ekki þessi sama fjögurra stjórna meirihluti. 

Gott að finna þegar almenningur var spurður í Kringlunni um viðhorf þeirra gagnvart málinu að þá upplifði ég mikla samúð gagnvart Vilhjálmi og ég vona að þetta verði til þess að borgarbúar sjái þarna ástæðu til þess að setja XD í hreinan meirihluta í borgarstjórn eftir tvö og hálft ár. 

Björn Ingi fór að mínu mati illa með góðan mann eins og Vilhjálm og ég get ekki sagt annað fyrir mína hönd og þeirra annara sem ég hef rætt við í dag, að ég treysti ekki Birni Inga og þeirra sem hafa nú myndað meirihlutasamstarf PUNKTUR !!!

Kveðja Inga Lára  


Mundir þú treysta viðhaldi þínu ?

Mér finnst Björn Ingi Hrafnsson vera eins og einskonar einstaklingur sem hleypur frá einum vandræðum í stað þess að leysa þau og ákveður nú að kúra í fangi annarra flokka og mynda með þeim einskonar nýjan R-lista eins og almennt er talað um í dag, eða reyndar enn ömulegri R-lista eins og Geir Haarde talaði um í fréttatíma í sjónvarpinu áðan.

Björn Ingi eins og væntanlega allir vita var búinn að lofa Vilhjálmi borgarstjóra í gærkveldi að halda samstarfinu áðan en stingur hann í bakið (úlfur í sauðagæru), og svo ákveður hann að stinga hann þarna í bakið og fer í meirihlutastjórn með hinum flokkunum sem ég get varla hugsað mér að hann Bjössi litli sé í einhverju uppáhaldi hjá.  Ætli hinir flokkarnir geti treyst á Björn Inga ??? ef ég ætti að taka dæmi um konu sem tekur við manni úr öðru hjónabandi og ákveður að þiggja bónorð frá honum, þá er það svona svipað eins og þarna er að gera, þessir flokkar vita allavega eitt, að hann stendur ekki við þau orð sem hann gefur !!!!!!

Mér finnst vera illa þarna að verki staðið og þegar ég sá Vilhjálm, Gísla Martein, Hönnu Birnu ásamt hinum flokkssystkinum sínum, þá verulega fann ég til með þeim og þau eiga sko alla mína samúð. Ég er samt þakklát með að fyrst maðurinn er svona verulega aumur að vera bæði lygari og svona ómerkilegur að svíkja þann flokk sem fekk flesta fylgið í Reykjavík í fyrra í borgarstjórnarkosningum, þá finnst mér alveg þess virði að hann og hans hyski fari eitthvað annað, en ég hefði viljað hafa Vilhjálm ennþá sem borgarstjóra og mynda um leið góðan og enn betri meirihluta með Samfylkingunni..... áfram Sjálfstæðisflokkur og Samfylking segi ég enn og aftur !!!!!!!!!!!!

Kveðja

Inga Lára Helgadóttir 


Ég var "klukkuð" hér á mbl.is.... svo að þá er að heyra það ;)

Bróðir minn sem er hér efstur á bloggvinalistanum mínum, hann klukkaði mig, svo ég ætla að segja frá átta atriðum sem afhjúpa það hver ég er Devil

1. Ég var ung þegar ég fyrst fór til sálfræðings

2. Ég var lögð í einelti í barnaskóla

3. Ég kláraði kvóta minn af áfengisdrykkju þann 7. júlí 2002 þegar ég var 21 árs gömul

4. Ég hef sofið hjá færri strákum en allar þær vinkonur mínar sem ég hef talað við og þá vil ég taka það fram að ég hef aldrei hallast að konum til að bæta það upp. 

5. Ég var "félagspakki" í tvö ár hér fyrir nokkrum árum.

6. Ég þurfti eitt sinn að leita aðstoðar á Geðsvið LSH vegna vanlíðunar sem stafaði af neyslu minni

7. Ég þarf að vera vakandi fyrir brestum mínum í daglegu lífi, því að undirrót erfiðleika alkóhólistans eru sjálfselska og eigingirni.

8. Ég þarf að taka mig á svo ég eyði ekki of miklum pening.....

Jæja Steini minn Wink hvernig lýst þér á þetta ?

 

Núna ætla ég að klukka:

Gísla tengdapabba

Sigurð Kára alþingismann 

Begga Lopez

Ágúst Ólafur Ágústsson

Svenni bloggvinur á Akureyri

Óttarr formaður minn í félagi fyrir skemmtilega fólkið

Vélstýran og að lokum

Þórður Ingi... 

 


Alveg ótrúlega skemmtilegur dagur :)

Á morgun á sonur minn afmæli, þann 6. október og þá verður hann þriggja ára gamall Smile

Við erum í dag búin að vera að undirbúa tvær veislur á morgun, sú fyrri fyrir vini og sú seinni fyrir fjölskyldur okkar. Við erum búin að vera að taka til og mamma kom til okkar í dag, rétt leit inn og sonurinn alveg í skýjunum að segja henni frá veislunni sem á að vera á morgun..... hann er svo montinn að hann er að fríka út Wink

Kvöldið var fínt þar sem við pabbi hans bjuggum til brauðtertur eftir að litla gullið fór að lúlla og það var engin smá stemning í því Smile svo verður kaka sótt í bakarí í fyrramálið og við bökum einnig kökur hér heima á morgun.

bara að deila með ykkur góðum degi,

Inga Lára Helgadóttir Grin


Hlustaðir þú á þáttinn í um klukkan 08:00........?

ég var að hlusta á útvarpið á leið í skólann í dag og þar voru þau Gassi og Sigga og hinn sem er lika svo skemmtilegur að tala um skottulækningar og hvað það sé. Ég hlusta einmitt alltaf á þennan þátt á leiðinni í skólann og er hann fínn til að vakna upp á morgnanna.Grin

Í dag var þátturinn reyndar svolítið þungur, þar sem áheyrendur voru farnir að ræða um læknamistök á sjúkrahúsinu í Keflavík og einnig varðandi Læknavaktina í Smáranum. Undecided

Þeir sem kvörðuðu undan sjúkrahúsinu í Keflavík kölluðu sjúkrahúsið gjarnan sláturhús og fór þá verulega fyrir brjóstið á mér. En þó það sé ótrúlegt, þá hef ég sem bý í bænum heyrt þess getið að fólki þar sé oftar en annarsstaðar ekki vel sinnt. Ég bjó þar eitt sinn sjálf í eitt og hálft ár og varð tvisvar að fara til læknis á þeim tíma og fekk samasem enga þjónustu, en sem betur fer þá var nú ekki neitt mikið að hjá mér í þau skiptin. En það var rosalegt að heyra sögurnar af sjúkrahúsinu og þarna voru einstaklingar að tjá sína eigin reynslu.Frown

Reyndar hef ég meiri reynslu af læknavaktinni í Smáranum og get ég sagt eftir að hafa þó nokkuð oft farið þangað með son minn að ekki hafi ég orðið vör við mikla fagmennsku í vinnubrögðum þar.

En málið er samt að hvort sem við erum á læknavaktinni eða á sjúkrahúsinu í Keflavík eða annarsstaðar, þá er misjafn sauðurinn meðal fólks. En þessar fréttir voru mjög sláandi og leiðinlegt að heyra og vona ég að þetta sé nú einhverjar ýkjur þarna inn á milli.

Varð að deila þessu með ykkur, þetta tók rosalega á að hlusta á þetta Woundering

Kveðja Inga Lára Helgadóttir 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Inga Lára Helgadóttir

Höfundur

Inga Lára Helgadóttir
Inga Lára Helgadóttir

Mér datt í hug að opna blogg, bara til að vera eins og Steingrímur stóri bróðir minn

Er nemi í Háskóla Íslands í félagsráðgjöf, húsmóðir með barn og mann og svo er ég í 40% starfi á Geðsviði LSH, á deild 33A

Ég hef gaman af blogginu og kem hér inn með mínar skoðanir og fleira sem mér dettur í hug að ræða. En vil endilega fá speglun á þær og viðhorf annarra.  Mínar eru ekki alltaf réttar og þá er gott að fá sjónarmið annarra ..... 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...ar_2008_002
  • Sófi til sölu
  • Hann er ekki alveg að sofna.
  • Vignir Bergmann tengdapabbi
  • Þrír saman

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 1924

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband